Sunnudaginn 6. mars hefjast aftur sýningar á barnaleikritinu Sindri silfurfiskur, sem vakti mikla hrifningu leikhúsgesta á öllum aldri á síðasta leikári. Í sýningunni er beitt sérstakri ljósatækni til þess að skapa undraveröld hafsins og skrautlegir fiskar, stórir og smáir, synda fyrir augum áhorfandans. Þetta er undurfallegt ævintýri um að það sé allt í lagi að vera öðruvísi en aðrir, og vera sáttur við sjálfan sig eins og maður er. Sýningar verða i Kúlunni, barnaleikhúsi Þjóðleikhússins á sunnudögum kl. 13.30 og 15.00 í mars og apríl.

Sýningin hlaut tilnefningu til Grímunnar sl. ár og var boðið að sýna á sænsku barnaleikhúshátíðinni BIBU í Lundi vorið 2010, þar sem hún fékk frábærar viðtökur.

Og Sindri syndir aftur til útlanda í vor þar sem sýningin hefur verið valin á dagskrá  heimsþings og alþjóðlegrar sviðslistahátíðar fyrir börn og unglinga sem haldinn verður í Kaupmannahöfn og Malmö í maí n.k Á þinginu verður fjallað um reynslu barna og unglinga og þá ímynd sem menning hefur í þeirra huga, nýja strauma, gæði og fjölbreytni í sviðslistum og hvernig alþjóðleg samvinna getur miðlað reynslu og hvatt til nýsköpunar. Í tengslum við heimsþingið verður haldin leiklistarhátíð  með leiksýningum frá fjölmörgum löndum. Þessi hátíð verður ein sú stærsta og mikilvægasta barna og unglingaleikhúshátíð sem haldin hefur verið.

Og nú hefur Sindra silfurfiski verið boðið á barnaleikhúshátíð í Moskvu næsta haust.

Höfundur Sindra silfurfisks er Áslaug Jónsdóttir en leikstjóri Þórhallur Sigurðsson.

Leikari sýningarinnar er Vigdís Hrefna Pálsdóttir, en 3 brúðustjórnendur stjórna sjávardýrunum og 12 leikarar ljá þeim raddir sínar.

{mos_fb_discuss:2}