Fíasól var frumsýnd í mars síðastliðnum og hefur síðan þá verið sýnd fyrir fullu húsi. Sýning númer 100 er n.k. sunnudag kl. 15.  Eins og alkunna er þá er Fíasól hin mesta gæðastúlka og auk heldur uppátækjasöm með afbrigðum. Því ákvað hún að gefa Neista, styrktarfélagi hjartveikra barna sýninguna. Sjöttu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Að jafnaði verða þrjár sýningar sérhvern laugardag og sunnudag kl. 11, 13 og 14:30 til jóla. Það er um að gera að bregðast skjótt við því að miðarnir renna út eins og heitt hangiket á jólum!

Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og saman leiða þeir börnin með leik og söng um leikhúsið. Meðal viðkomustaða á ferðalagi þeirra eru Kristalsalurinn, Leikhúsloftið og Leikhúskjallarinn. Börnin ferðast inn í ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin í gamla daga og í nútímanum.

Leitin að jólunum er eftir Þorvald Þorsteinsson og er sýningin ríkulega hljóðskreytt með tónlist Árna Egilssonar við Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum. Sýningin var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á aðventunni 2005 og hlaut Grímuna – Íslensku leiklistarverðlaunin sem barnasýning ársins árið 2006. Leitin að jólunum hefur alla tíð notið fádæma vinsælda og uppselt hefur verið á nær því hverja einustu sýningu frá því hún var fyrst sýnd. Sýning númer 125 verður á sunnudaginn kl. 14:30.

Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson og leikarar þau Þórunn Clausen, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólafur Egill Egilsson, Guðrún Gísladóttir, Ævar Þór Benediktsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Álfrún Örnólfsdóttir. Hljóðfæraleikarar eru Darri Mikaelsson og Vadim Federov.

{mos_fb_discuss:2}