September, örverk um sekt og sakleysi, verður sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is kl. 12.30 fimmtudaginn 30. september frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð. Verkið er níunda örverkið af 12 sem Áhugaleikhús atvinnumanna býður áhorfendum upp á endurgjaldslaust. Verkin taka á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tilvist í Reykjavík 2010 og eru kennd eftir þeim mánuði sem þau eru flutt í. Viðfang verkanna ræðst af því sem hrærist í samtímanum og hefur áhrif á líf okkar. Áhugaleikhúsið veltir nú fyrir sér sekt og sakleysi þjóðarinnar, hlutverki dæmenda og réttlæti dóma. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir.
Áhorfendur eru boðnir velkomnir í Útgerðina til að upplifa sjónleikinn með berum augum eða sitja í sínu umhverfi fyrir framan tölvuna og fylgjast með í beinni útsendingu. Leikarar eru Aðalbjörg Árnadóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Halldóra Malín Pétursdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Orri Huginn Ágústsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Um beina útsendingu sá Hákon Már Oddson ásamt útskriftarnemum Lista- og fjölmiðlasviðs Borgarholtsskóla.
Áhugaleikhús atvinnumanna er hópur atvinnufólks í sviðslistum sem hefur áhuga á frelsi til óháðrar listsköpunar í leiklist. Leikhúsið lítur á leiksýningar sínar sem vettvang til að velta áleitnum spurningum fyrir sér þó ekki sé langt í kímni og kæruleysi. Markmiðið með starfinu er að að skapa framsækin og áleitin sviðslistaverk sem í eðli sínu eru samtal við áhorfendur og eru óháð markaðsöflum. Leikhúsið vill ekki fara í viðskiptasamband við áhorfendur sína og býður þess vegna áhorfendum í samtal án endurgjalds og þiggur ekki aðgangseyri á sýningar sínar. Listamenn leikhússins fengu úthlutað listamannalaunum vegna verkefna sinna árið 2010.
{mos_fb_discuss:2}