Þú situr ein(n) á kaffihúsi á aðfangadag, ætlar að taka lífinu með ró og safna kröftum áður en hátíðina ber að garði. Inn af götunni gengur sú manneskja sem þú áttir síst von á og vildir ekki undir neinum kringumstæðum hitta. Hvað gerir þú? Hvað gerir hún? Hvernig mun fortíðin ykkar hafa áhrif á þennan annars venjulega aðfangadag?

Höfundurinn Þór Rögnvaldsson lætur nú enn og aftur heyra í sér með nýju athyglisverðu leikriti. Eftir að hafa sigrað leikritasamkeppni af tilefni hundrað ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur hefur hann ekki setið auðum höndum og sendir nú frá sér verk sem hefst á örleikriti Strindbergs Hin sterkari (Den starkere) en síðan leggur Þór út af þessu stefi og prjónar aftan við meistaraverk Strindbergs fjögur ólík en samtvinnuð tilbrigði; tvö tilbrigði fyrir konur og önnur tvö fyrir karlleikara. Leikritið heitir þess vegna Tilbrigði við stef, en það er í senn áhrifamikið, spennandi og á köflum kómískt verk. Leikararnir eru þeir Valgeir Skagfjörð og Gunnar Gunnsteinsson sem leika karlhlutverkin og Lilja Þórisdóttir og Guðrún Þórðardóttir í kvenhlutverkunum. Leikstjóri er Inga Bjarnason sem hefur sett á svið á fimmta tug leikrita m.a Dauðadans Strindbergs, Trójudætur og Medeu eftir Evripítes og MakbeðShakespeares. Þetta er uppsetning sem enginn leikhúsunnandi ætti að láta framhjá sér fara.

Sýningar:
29. jan. Fös kl. 20.00
31. jan. Sun kl. 20.00
4. feb. Fim kl. 20.00 

6. feb. Lau kl. 20.00 

11. feb. Fim kl. 20.00
14. feb. Sun kl. 20.00
21. feb. Sun kl. 20.00 

25. feb. Fim kl. 20.00 

27. feb. Lau kl. 20.00

Nánari upplýsingar á www.tilbrigdi.com  Miðapantanir í síma 562 9700 eða með því að senda póst á idno@xnet.is