Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna annarrar úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar, en úthlutað verður í byrjun mars.

Markmið Leikritunarsjóðsins Prologos er að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið, sem og að stuðla að framþróun og eflingu leiklistarinnar. Prologos veitir árlega allt að fimm höfundum styrk til að vinna að leikhandriti, en einnig eru veittir styrkir vegna leiksmiðjuverkefna. Úthlutað er úr sjóðnum þrisvar á ári.
 
Annars vegar er auglýst eftir hugmynd að leikriti. Við umsókn skal leggja fram lýsingu á verkinu á 2 blaðsíðum, nokkrar síður af leiktexta og stutta ferilskrá höfundar. Höfundur getur hlotið 600.000 kr. styrk til að vinna að handritsdrögum. Á síðari stigum getur höfundur hlotið viðbótarstyrk til að fullvinna handritið.

Hinsvegar er auglýst eftir hugmynd að leiksmiðju- eða tilraunaverkefni. Við umsókn skal leggja fram lýsingu á verkefninu á 2 blaðsíðum, ásamt lista yfir þátttakendur. Einnig skulu stuttar ferilskrár þátttakenda fylgja.
 
Umsóknir skal senda með tölvupósti á netfangið prologos@leikhusid.is eða í almennum pósti, merktar: Þjóðleikhúsið, Prologos, Lindargötu 7, 101 Reykjavík.
 
Fagráð sjóðsins fjallar um innsendar umsóknir og mælir með verkefnum, en stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutun. Í fagráði Prologos sitja Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Pétur Gunnarsson og Stefán Jónsson. Í sjóðstjórn sitja Bjarni Ármannsson, Kristbjörg Kjeld og Tinna Gunnlaugsdóttir.
 
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Þjóðleikhússins, www.leikhusid.is, eða fá með því að senda tölvupóst á prologos@leikhusid.is
 

{mos_fb_discuss:3}