Föstudaginn 24. október frumsýnir Leikfélag Hveragerðis gamanleikritið H.V.S.F.Í. eftir leikfélagsmeðlimina Jakob Hansen, Hafstein Þór Auðunsson og Sindra Kárason. Alls taka 12 leikarar þátt í sýningunni og má þar nefna helst kempurnar Steindór Gestsson, Hjört Benediktsson, Sigurgeir H. Friðþjófsson og Önnu Jórunni Stefánsdóttur svo einhverjir séu nefndir. Leikstjóri verksins er að þessu sinni Ólafur Jens Sigurðsson sem er  Hvergerðingum og Selfyssingum góðkunnur og er þetta þriðja sinn sem hann leikstýrir fyrir Leikfélagi Hveragerðis, en þar á undan voru það Þið munið hann Jörund og Þrek og tár.

Sagan gerist í upphæðum þar sem fjallað er um ýmsa heimsfræga einstaklinga, sem eru liðnir eða hafa verið fengnir að láni upp í hinn sannkallaða stjörnuhiminn, og sambönd þeirra á milli. Þar sem fræga fólkið er annars vegar þá geta orðið margvíslegir árekstrar um hver hafi áorkað mestu í lifanda lífi og hverra minninga er vert að minnast á, m.ö.o. það er ekki alltaf himnasæla á Verndarans slóð.

Sýningar verða í húsi leikfélagsins, Völundi, að Austurmörk 23.

Nánari upplýsingar um sýningar og miðapantanir eru í síma 847-3460 og á tölvupósti hveroleikhus@gmail.com.

Fyrstu sýningar eru sem hér segir:

Frumsýning – Föstudagur 24. okt.
2. sýning – Sunnudagur 26. okt.
3. sýning – Fimmtudagur 30. okt.
4. sýning – Sunnudagur 2. nóv.

Sýningar hefjast kl 20:30

Miðaverð kr. 1.500 
Öryrkjar / eldriborgarar / 13 ára og yngri (í fylgd  með foreldrum) kr. 1.000
Hópafsláttur 10 eða fleiri kr. 1.000

{mos_fb_discuss:2}