Kómedíuleikhúsið stendur árlega fyrir leiklistarhátíðinni ACT ALONE á Ísafirði yfir sumartímann. ACT ALONE er helguð einleikjum og er meðal fárra slíkra sem helga sig þessu sérstaka leikhúsformi. Það er ekki eina sérkenni hátíðarinnar því frá upphafi hefur verið ókeypis á ACT ALONE og gefst því fólki frábært tækifæri á að komast frítt í leikhús og um leið að kynna sér þetta sérstaka leikhúsform. Hátíðin verður nú haldin í 3. sinn dagana 29. júní til 2. júlí í Hömrum á Ísafirði.
Kómedíuleikhúsið stendur árlega fyrir leiklistarhátíðinni ACT ALONE á Ísafirði yfir sumartímann. ACT ALONE er helguð einleikjum og er meðal fárra slíkra sem helga sig þessu sérstaka leikhúsformi. Það er ekki eina sérkenni hátíðarinnar því frá upphafi hefur verið ókeypis á ACT ALONE og gefst því fólki frábært tækifæri á að komast frítt í leikhús og um leið að kynna sér þetta sérstaka leikhúsform. Hátíðin verður nú haldin í 3. sinn dagana 29. júní til 2. júlí í Hömrum á Ísafirði.

Dagskrá ACT ALONE 2006 er mjög glæsileg með níu íslenskum einleikjum og þremur erlendum gestaleikjum. Óhætt er að segja að stærsti viðburður hátíðarinnar sé koma Bandaríska leikarans Eric Bogosian sem er eitt stærsta nafnið í einleikjaheiminum síðustu áratugi. Leikir hans hafa unnið til fjölmargra verðlauna og hafa verið sýndir við miklar vinsældir. Á Act alone mun hann sýna leikinn The worst of Eric Bogosian. Nýjung á Act alone í ár er að nú verður einnig boðið uppá leiklistarnámskeið. Það er rétt að hafa hraðan á og skrá sig sem fyrst á námskeiðin því þátttakendafjöldi er takmarkaður. Einnig verður haldin bókamarkaður í Hömrum meðan á hátíðinni stendur þar sem boðið verður uppá ýmsar leikbókmenntir allt frá leikritum til ævisagna þekkra leikara. Að vanda er ókeypis inná ACT ALONE.

otomoto.jpgDAGSKRÁ ACT ALONE 2006
29. JÚNÍ – 2. JÚLÍ

Fimmtudagur 29. júní
Setning og opnunarsýning ACT ALONE í Hömrum
Kl. 21. THE WORST OF ERIC BOGOSIAN. Eric Bogosian.
Boðið verður uppá léttar veitingar að sýningu lokinni.

Föstudagur 30. júní
Hádegisleikhús á Hótel Ísafirði. Boðið verður uppá fiskrétti á hlægilegu verði. Sýndir verða einleikirnir.
Kl. 12.12. LÍNUÍVILNUN. Elfar Logi Hannesson.
Kl. 12.32. ÆTLAR MAÐURINN AÐ DETTA. Eyvindur P. Eiríksson.

Leiklistarnámskeið í Háskólasetri Vestfjarða
Kl. 13.30 – 15.30. UPPISTAND OG TRÚÐUR. Kennari Zeljko Vukmirica. Skráningagjald 4000.- kr.
kl. 16.00 – 18.00. KÓMEDÍU- OG GRÍMULEIKUR. Kennari Ole Brekke. Skráningargjald 4000.- kr.

Kvöldsýningar í Hömrum.
Kl. 20.     HISTORY OF MY STUPIDITY. Zeljko Vukmirica.
Kl. 21.30. Söguþráður. Vídeó innsetning. Helga Arnalds. Sýnt alla helgina.
Kl. 22.     GLÆSIBÆJAREINTÖLIN. Benóný Ægisson.

Laugardagur 1. júlí
Leiklistarnámskeið í Háskólasetri Vestjarða
Kl. 10 – 12. KÓMEDÍU- OG GRÍMULEIKUR. Kennari Ole Brekke.

Sýningar í Hömrum.
Kl. 13.00. MJALLHVÍT. Helga Arnalds.
Kl. 14.30. SÚPAN HENNAR GRÝLU. Hallveig Thorlacius.
Kl. 16.00. DIMMALIMM. Elfar Logi Hannesson.
Kl. 20.00. OTOMOTO. Ole Brekke.
Kl. 22.00. THE POWER OF LOVE (HIÐ FULLKOMNA DEIT). Halldóra Malin.

Sunnudagur 2. júlí
Leiklistarnámskeið í Háskólasetri Vestfjarða.
Kl. 10 – 12. Uppistand og trúður. Kennari Zeljko Vukmirica.

Sýningar á Þingeyri.
Kl. 14. GÍSLI SÚRSSON (á ensku). Elfar Logi Hannesson. Útivíkingasviðið.
Kl. 16. ÆVINTÝRIÐ UM AUGASTEIN. Felix Bergsson. Félagsheimilið.

Verið velkomin á ACT ALONE 2006 og með ósk um góða skemmtun
Kómedíuleikhúsið