Föstudaginn 8. febrúar verður einn vinsælasti farsi allra tíma, Fló á skinni, frumsýndur hjá LA í glænýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar. Fló á skinni hefur áður notið mikillar hylli á fjölum Leikfélags Reykjavíkur og muna margir eftir Gísla Halldórssyni og fleiri ástsælum leikurum í hlutverkum sínum í verkinu. Leikstjóri er María Sigurðardóttir en hún leikstýrði m.a. leikritinu vinsæla Sex í sveit.
Fló á skinni er einn besti og eitraðasti gamanleikur allra tíma. Nú eru 100 ár frá því að þessi óborganlegi farsi Feydeau kitlaði fyrst hláturtaugar áhorfenda og hóf sannkallaða sigurför um heiminn. LA fagnar tímamótunum með sinni fyrstu uppsetningu á þessu vinsæla verki og í glænýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar.
Er það rétt að í annálaðri fegurð Eyjafjarðar sé sveitasetrið Sveinbjarnargreiði griðastaður elskenda á laun? Hefur Saga Ringsted ástæðu til að gruna eiginmanninn um græsku eða hefur hún sjálf eitthvað að fela? Hver var konan sem bað forstjórann um blint stefnumót? Hélt Elli við konu Jóhannesar eða hélt hann bara upp á hana? Er Helmut Edelstein manískur kvennamaður eða bara þýskur ferðamaður? Er afbrýðisemi Miroslav á rökum reist? Og er ást Tínu sönn? Ást og afbrýðisemi, misskilningur á misskilning ofan og allt í dásamlegri steik.
Leikmynd og búninga hannar Snorri Freyri Hilmarsson. Ljósahönnuður er Björn Bergsteinn Guðmundsson. Tónlistin er eftir hljómsveitina Sprengjuhöllin og er lag þeirra, Fló á skinni farin að hljóma á öldum ljósvakans.
Leikarar eru Guðjón Davíð Karlsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Hallgrímur Ólafsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Viktor Már Bjarnason, Atli Þór Albertsson, Linda Ásgeirsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Aðalsteinn Bergdal, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Randver Þorláksson, Valdimar Örn Flygering, Þráinn Karlsson og Árni Tryggvason en þeir tveir síðastnefndu skipta hlutverkinu á milli sín.