Föstudaginn 2. nóvember verður verðlaunaverkið Ökutímar eftir Paulu Vogel frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikritið hefur farið sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Meðal annars hlaut það hin virtu Pulitzer-verðlaun þegar það var frumsýnt í Bandaríkjunum fyrir sjö árum. Glæsilegur hópur listamanna tekur þátt í uppsetningu LA á verkinu en meðal þeirra eru tónlistarkonan Lay Low en hún semur tónlist fyrir uppsetninguna og flytur í sýningunni. Þegar er uppselt á 17 sýningar verksins.

 
Ökutímar er margslungið leikrit sem segir þroskasögu ungrar stúlku, Lillu. Fjölskylda hennar er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja henni lífsreglurnar. En er Peck bara góður frændi þegar hann býðst til að kenna henni á bíl? Ökutímar er áleitið leikrit sem fjallar um svik, ást og fyrirgefningu og tekur á viðkvæmu máli á óvenjulegan hátt.  Höfundur fjallar hér um kynferðislega misnotkun en nálgunin er óvænt.  Hér er á ferðinni þroska- og fjölskyldusaga sem fær áhorfendur til að súpa hveljur en er þó drifin áfram af heillandi húmor. Paula Vogel lýsti verkinu sjálf sem óði til sögunnar um Lólítu en í tilfelli Ökutíma væri sagan sögð frá sjónarhorni stúlkunnar sjálfrar.

Ökutímar er margverðlaunað verk sem farið hefur sigurför um heiminn. Leikritið vann meðal annars hin virtu Pulitzer verðlaun þegar verkið var frumsýnt í Bandaríkjunum. Tónlistarkonan Lay Low, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2006, semur tónlist við sýninguna og tekur þátt í flutningi verksins. Hún er inni á sviðinu allan tímann og flytur frumsamin lög fyrir sýninguna á sviðinu en einnig hljóma lög sem Lay Low hefur tekið upp með hljómsveit sinni og eru úr smiðju Dolly Parton.  Nýtt lag eftir Lay Low, SAMAN, er farið í spilun á öldum ljósvakans.

Með aðalhlutverk fara leikarinn góðkunni Þröstur Leo Gunnarsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir en hún er nýútskrifuð leikkona og nýkomin á fastan samning hjá LA. Aðrir leikarar eru Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir.  Þýðing: Sigtryggur Magnason, leikstjórn: María Reyndal, leikmynd og búningar: Filippía Elísdóttir,  tónlist: Lay Low og lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Frumsýnt 2. nóvember 2007 í samstarfi við TM.  Sýnt í Rýminu. Rýmið er samstarfsverkefni LA og TM.
 

{mos_fb_discuss:2}