Hann Emil í Kattholti er kominn á Hvammstanga með öll sín skammarstrik. Að sjálfsögðu fylgir öll fjölskyldan úr Kattholti með í kaupunum og þau taka líka á móti gestum.

Leikflokkurinn á Hvammstanga frumsýndi Emil í Kattholti föstudaginn 2. mars kl. 20:00 í félagsheimili Hvammstanga. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.

emil.gifÞessi sýning er afar lifandi og skemmtileg og í henni er mikið sungið. Í sýningunni eru 13 leikarar en að henni kemur einnig fjöldi manns sem starfar bak við tjöldin.

2. sýning sunnudag 4. mars kl. 16:00
3. sýning miðvikudag 7. mars kl. 20:00
4. sýning laugardag 10.mars kl. 16:00

Miðaverð kr. 1.800,-
Miðapantanir í s. 868-9448 Jóna Magga