Óskabörn ógæfunnar frumsýna leikritið Hans Blær í Tjarnarbíói laugardaginn 10. mars.

Hafið þið nokkurn tíma spurt ykkur hvaða eiginleika manneskja þyrfti að hafa til þess að þið gætuð verið þess fullviss að viðkomandi væri að öllu leyti, innra sem ytra, óferjandi skíthæll og viðundur?  Og ef ekki – Hvers vegna í ósköpunum ekki?

Hans Blær Viggósbur er gjálífiströll með uppleysta sjálfsmynd, ofvirka tískuvitund og egó í hjartastað. Hán er glundroðamaskína í fjölkynja líkama sem lifir fyrir það eitt að storka heiminum og trekkja upp hina viðkvæmu. Allt frá því hán komst fyrst í tæri við hamstrahjól fjöl- og félagsmiðlunar hefur Hans Blær verið á milli tannanna á þjóðinni, sem sýpur hveljur og skríkir til skiptis, en skemmtir sér alltaf vel. Þegar upp kemst að Hans Blær hefur notað nauðgunarmeðferðarheimilið Samastað til þess að svala afbrigðilegum fýsnum sínum er hugsanlegt – rétt svo hugsanlegt – að samfélagið hafi loks fengið nægju sína og þjóðin sé hætt að flissa.

Óskabörn ógæfunnar og Eiríkur Örn Norðdahl unnu síðast saman að leiksýningunni Illska sem hlaut sex tilnefningar til Grímunar, þar á meðal sýning ársins og leikrit ársins. Leiksýningin Illska var unnin upp úr samnefndri verðlaunaskáldsögu Eiríks sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2012. Með Hans Blævi snúa þau ferlinu við og sýna fyrst leikrit sem síðar mun koma út í formi skáldsögu jólin 2018.

Óskabörn ógæfunnar hafa vakið mikla athygli fyrir að taka á alvarlegum og jafnvel óþægilegum málum á þann hátt að fólk eigi auðvelt með að tengja, skilja og jafnvel hlæja að. Nú matreiða þau ískalt lík tröllasamfélagsins ofan í gapandi vandláta skolta ofurmeðvitaðra hipsterkúreka og réttlætisriddara – á besta stað í borginni – og bera það fram snyrtilega niðursneitt á nýuppþvegnu silfurfati.
Skemmtið ykkur í guðanna bænum vel. Þetta verður tótal hatefest.

Höfundur: Eiríkur Örn Norðdahl
Leikstjóri: Vignir Rafn Valþórsson
Leikarar: Jörundur Ragnarsson, Sara Martí Guðmundsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir & Kjartan Darri Kristjánsson
Leikmynd: Brynja Björnsdóttir
Videó: Roland Hamilton
Ljós: Arnþór Þórsteinsson & Kjartan Darri Kristjánsson
Hljóð: Áslákur Ingvarsson
Búningar: Enóla Ríkey
Guðssending: Sveinn Óskar Ásbjörnsson