Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur tilnefnt sýningu Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, sem framlag okkar Íslendinga á leiklistarhátíð NEATA (norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins) í Litháen næsta sumar.

Leiklistarhátíðir NEATA eru haldnar annað hvert ár, til skiptis í aðildarlöndunum sem eru norðurlöndin ásamt Eistlandi, Lettlandi og Litháen. NEATA á 20 ára afmæli í ár en það var stofnað í Noregi 1998.

Svarti kassinn er frumsamið leikverk, sem var frumsýnt af Leikfélagi Kópavogs föstudaginn 28. apríl 2017 í Leikhúsinu við Funalind. Verkefnið er samsköpunarverkefni í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og var það í vinnslu með hléum frá því í nóvember 2016.

Hvað er svarti kassinn? Er svarti kassinn Pandórubox? Er hann leikhús? Er hann lífið sjálft?
Réttu barni kassa og það reynir að opna hann. Réttu því fleiri kassa og barnið byggir turn. Forvitnin, þekkingarþráin og sköpunarþörfin er inngróin og við viljum rannsaka, uppgötva, eiga og nota það sem við finnum. Manneskjunni virðist skapað að skapa til góðs eða ills.
Við stöndumst ekki freistinguna að opna. Gægjumst saman ofan í svarta kassann og sjáum hvað kemur upp úr honum; eitthvað mannlegt, skrýtið, skemmtilegt, hræðilegt, sorglegt, eitthvað fyndið. Þessi svarti kassi er bara of spennandi til að láta hann í friði.

Tíu leikarar taka þátt í sýningunni en fjöldi annarra hefur lagt hönd á plóginn. Hrefna Friðriksdóttir er höfundur texta, Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu, Halldór Sveinsson frumsamdi tónlist og hljóðmynd er í höndum Harðar Sigurðarsonar og Hrefnu Friðriksdóttur. Listahópurinn Norðanbál sá um hönnun leikmyndar, María Björt Ármannsdóttir, Sólveig Dóra Hafsteinsdóttir og Una Guðjónsdóttir sjá um búninga ásamt fleirum og þær Sigrún Tryggvadóttir og Hrefna Friðriksdóttir um leikmuni í samstarfi vð leikhópinn.

Leiklistarvefurinn óskar Leikfélagi Kópavogs velgengni og góðrar ferðar til Litháen.

Hér má lesa umfjöllun Sigríðar Hafsteinsdóttur um sýninguna en pistillinn var birtur á Leiklistarvefnum 18. maí 2017;

Lífið og listin í Kópavogi