Frumuppfærsla á Íslandi á bresku verki eftir Söru Kane, 4:48 Psychosis, sem frá því það var frumsýnt árið 2000 hefur vakið gríðarlega athygli og umtal víða um heim.

Frumsýnt í Kúlunni 10. september kl. 19.30.

Munið ljósið og trúið á ljósið
Augnablikið heiðskírt rétt fyrir eilífa nótt
ekki láta mig gleyma

Verk leikskáldsins Söruh Kane (f. 1971) einkennast af hatrammri baráttu hennar við alvarlegt þunglyndi en hún svipti sig lífi árið 1999. 4:48 Psychosis er kveðjukoss hennar til leiklistarinnar sem hún hafði tekið ástfóstri við. Í örvæntingu rökræðir sál á mörkum lífs og dauða réttlætingu þess að taka eigið líf.

Leikari
Edda Björg Eyjólfsdóttir
Leikstjórn
Friðrik Friðriksson
Tónlist
Magnús Örn Magnússon, Stefán Már Magnússon
Hljóðmynd
Elvar Geir Sævarsson, Magnús Örn Magnússon, Stefán Már Magnússon
Leikmynd
Stígur Steinþórsson
Búningar
Filippía I. Elísdóttir
Lýsing
Hermann Karl Björnsson
Þýðing
Sigurlaug “Didda” Jónsdóttir
Dramatúrg
Stefán Hallur Stefánsson

Edda Productions í samstarfi við Þjóðleikhúsið, Aldrei óstelandi, Icelandair, Eimskip og Vodafone. Framleiðandi: Edda Björg Eyjólfsdóttir.