Year: 2011

Fertugsafmæli Leikklúbbs Laxdæla

Leikklúbbur Laxdæla heldur uppá fertugsafmælið sitt um næstu helgi í Dalabúð í Búðardal.  Í tilefni afmælisins setur félagið upp leiktirið Skóarakonan dæmalausa eftir Federico Garcia Lorca í þýðingu Geirs Kristjánssonar og í leikstjórn Margrétar Ákadóttur.Skóarakonan dæmalausa var einnig fyrsta leikritið sem félagið setti upp árið 1971. Leikritið fjallar um 18 ára stúlku sem er gift skóara þorpsins, en hann er 63 ára. Stúlkan verður fyrir aðkasti nágrannakvenna sinna sem finnst hún ekki sæma þessum fína manni og stendur hún í stöðugu þrasi við þær og eiginmanninn. Á meðan hún hefur flesta upp á móti sér, hefur henni samt tekist...

Read More

Síðustu sýningar á Dampskipinu Ísland

Föstudaginn 18. og laugardaginn 19. nóvember verða síðsutu sýningar hjá Litla leikklúbbnum á leikritinu Dampskipið Ísland eftir Kjartan Ragnarsson í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Frumsýnt var 21. október og hafa nú þegar verið sýndar 8 sýningar. Leikstjóri er Halldóra Björnsdóttir. Leikritið gerist um borð í farþegaskipi á leið til Íslands á millistríðsárunum. Um borð er ung kona, Tina Larsen að nafni, en hún er á leið til landsins eftir að hafa dvalið langdvölum í Kaupmannahöfn. Á leiðinni kynnist Tina samferðamönnum sínum sem sumir hverjir hafa ýmislegt að fela. Tónlistin spilar stórt hlutverk við að skapa réttu stemninguna, en inn í...

Read More

Vertu úti! í Kópavogi

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir glænýtt leikverk er nefnist Vertu úti sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Verkið er byggt á þekktum þjóðsögum og þjóðsagnaminnum. Hér segir frá systkinum sem leggja á Heiðina þegar allra veðra er von, fleiri reynast vera á sveimi á sama tíma. Fólk hittist eða fer á mis og allra bíða margvísleg örlög. Níu leikarar taka þátt í sýningunni sem er í leikstjórn Grímu Kristjánsdóttur. Sýningar eru í Leikhúsinu, Funalind 2, og hefjast kl. 20.00. Miðapantanir eru í midasala@kopleik.is eða í síma 554-1985.Nánari upplýsingar á www.kopleik.is....

Read More

Mikið um að vera hjá Leikfélagi Selfoss

Það er mikið um að vera í Litla leikhúsinu við Sigtún um þessar mundir hjá Leikfélagi Selfoss. Sýningum á hinu skemmtilega barnaleikriti Rúi og Stúi er nýlokið og vill leikfélagið þakka öllum þeim sem komu á sýninguna kærlega fyrir komuna en aðsókn og viðtökur voru einstaklega góðar. En þó að sú sýning hafi runnið sitt skeið er margt spennandi framundan. Helgina 19. – 20. nóvember verður námskeið í gervi og förðun undir leiðsögn Kristínar Thors og eru enn laus pláss á námskeiðið. Námskeiðið er opið öllum en Kristín hefur mikla reynslu í sínu fagi. Hið vinsæla Hugarflug verður haldið...

Read More

Leikfélagið Sýnir heldur aðalfund

Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir verður haldinn miðvikudaginn 16. nóvember kl 20.00 að Sogavegi 115, 2. hæð til vinstri. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, þ.á.m. kosning nýrrar stjórnar en ljóst er að kosinn verður nýr formaður og nýr gjaldkeri. Einnig verða ræddar hugmyndir um starfið framundan. Gamlir jafnt sem nýir félagar velkomnir og áhugasamir eru hvattir til að að mæta....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert