Year: 2011

Vel heppnað námskeið á Sauðárkróki

Dagana 7. – 11. mars stóð Leikfélag Sauðárkróks fyrir leiklistarnámskeiði í húsnæði sínu Leikborg. Leiðbeinandi var Jakob S. Jónsson sem mun leikstýra Sæluvikuverkefni LS þetta árið, Svefnlausa brúðgumanum. Alls tóku 18 manns þátt í  námskeiðinu, allir með einhverja leikreynslu en mismikla þó. Tíðindamaður heimsíðu leikfélagsins (www.skagafjordur.net/LS) leit við á námskeiðinu fyrsta kvöldið, spurði þátttakendur nokkurra spurninga og varð nokkurs vísari um út á hvað leiklistarnámskeið gengur. Það sem dró fólkið á námskeiðið virtist aðallega vera það að menn langaði að lyfta sér upp, kynnast sjálfum sér og sinni getu, teygja aðeins á þægindasviðinu, víkka sjóndeildarhringinn og nýta sér þetta...

Read More

Fimmhurða farsi í Kópavogi

  Bót og betrunLeikfélag KópavogsLeikstjóri: Hörður Sigurðarson Leikfélag Kópavogs sýnir farsa þetta vorið. Það er verk Michael Cooney, Cash on Delivery sem birtist hér í þýðingu Harðar Sigurðarsonar sem Bót og betrun. Verkið hefur hlotið góðar viðtökur beggja vegna Atlantsála. Hörður Sigurðarson leikstýrir einnig. Helsti kostur þessa leikverks, kannski umfram önnur sömu tegundar, er að það nær aldrei að verða fyrirsjáanlegt. Sem er afrek út af fyrir sig. Plottið tekur allskonar beygjur og misskilningur og lygasögur eru endalaust að þróast í brjálaðri áttir í gegnum allt verkið. Strax á fyrstu mínútum verksins kemur í ljós að eitthvað misjafnt er...

Read More

Aukasýning á Allskonar Elvis

Uppselt hefur verið á þær fimm sýningar sem búnar eru af Allskonar Elvis hjá Leikfélagi Mosfellssveitar og uppselt er á föstudag 18. mars n.k. en búið er að setja á tvær sýningar til viðbótar föstudaginn 25. mars klukkan 20:00 og 23:00. Nánar verður auglýst síðar með framhald. Miðapantanir í síma 5 66 77 88, miðaverð aðeins krónur 1500. Einnig er hafinn undirbúningur hjá LM vegna Aðalfundar BÍL og stuttverkahátíðar í Bæjarleikhúsinu þann 29. apríl n.k. Vonumst til að sjá sem flesta á báðum viðburðum....

Read More

Lífshættulegur þjóðsagnaheimur

Leikfélag SelfossHið dularfulla hvarf Hollvinafélagsins Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson Hið dularfulla hvarf Hollvinafélagsins eftir Gunnar Björn Guðmundsson og leikhóp LS er skemmtileg tilraun til að færa íslenskar þjóðsögur og íslenska þjóðtrú í búning leikritsins. Ef verkinu væri léður fallegri endir mætti hugsa sér það sem fræðsluefni fyrir börn og þá ekki síður setja upp á erlendu máli sem sýningu fyrir erlenda ferðamenn sem hingað koma. En óneitanlega þarf að fægja gripinn svolítið áður en lengra er haldið. Eftir mjög glæsilega byrjun í tónum og látbragði dettur þetta frumsamda leikverk svolítið niður strax í fyrsta kafla. Í stað þess að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert