Síðustu forvöð á Bót og betrun
Leikfélag Kópavogs hefur undanfarið sýnt fimmhurðafarsann Bót og betrun eftir Michael Cooney við rífandi góðar viðtökur. Aðeins þrjár sýningar eru nú eftir áður en sýningin fer í mánaðarlangt hlé. Uppselt er á sýningar fim. 24. og fös. 25. mars en enn eru lausir miðar sunnudaginn 27. mars. Sýnt er í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi. Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til svika þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara að komast á bætur en af þegar boltinn er einu sinni farinn...
Read More


