Year: 2011

NEATA-hátíðin í Danmörku 2012

Dagana 31. júlí til 5. ágúst 2012 verður sjöunda NEATA-leiklistarhátíðin haldin, að þessu sinni í Sønderborg á Suður-Jótlandi. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi. Aðildarlönd NEATA eru Danmörk, Eistland, Finnland, Færeyjar, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur og Svíþjóð. Hvert land má senda eina leiksýningu sem er að hámarki 90 mín. löng. Leikið verður á leiksviðum í hefðbundnum leikhúsum. Hátíðin greiðir uppihald og þátttöku í hátíðinni fyrir 10 manna hópa frá hverju landi, ef hóparnir eru stærri bera þeir sjálfir umframkostnað vegna uppihalds. Leikhóparnir gista...

Read More

Fjölbreytt dagskrá hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs er með margt spennandi á prjónunum á komandi leikári. Í september verður í boði leiksmiðja sem er hugsuð fyrir byrjendur og styttra komna í leiklist. Unglingadeild félagsins hefur störf 19. september með námskeiði undir stjórn Grímu Kristjánsdóttur og í kjölfarið verður sett upp sýning sem áætlað er að frumsýna um miðjan nóvember. Í október verður haldið 3ja daga námskeið fyrir vana leikara undir stjórn Rúnars Guðbrandssonar. Í nóvember hefjast síðan æfingar fyrir nýtt leikverk með frumsaminni tónlist sem frumsýnt verður um mánaðamótin jan-feb.    Verkið ber vinnuheitið Hringurinn. Fljótlega eftir áramót heldur félagið svo sitt árlega Stjörnuljósakvöld sem er skemmtikvöld með blandaðri dagskrá. Í apríl er síðan stefnt að vorverkefni sem enn...

Read More

Tristram og Ísönd frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu

Leikfélagið Sýnir frumsýnir í Gaflaraleikhúsinu þann 10. september nýja leikgerð af riddarasögunni um Tristram og Ísönd og þeirri óbærilegu ást sem þau báru hvort til annars og þeim grimmu örlögu sem stíuðu þeim í sundur. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina ásamt Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Einungis verða sýndar fimm sýningar. Sagan af Tristram og Ísönd er ein þekkasta ástarsaga miðalda en hún segir frá riddaranum Tristram sem fengið er það verkefni að vinna ástir Ísöndar Írlandsprinsessu fyrir hönd frænda síns, Markis Englandskonungs. Ekki vill þó betur til en svo að Tristram og Ísönd fella hugi saman...

Read More

Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús

Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Tími: laugardaginn 17. september og sunnudaginn 18. september frá kl. 9 – 15. Heildartími námskeiðs 18 kennslustundir/12 klukkustundir. Kennari: Benedikt Axelsson lýsingahönnuður Námskeiðsgjald: 27.500 kr. Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga. Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (gamli Sjómannaskólinn), Hátíðarsalur 2. hæð til vinstri. Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is Ath! Námskeiðsgjöld...

Read More

Leikfélag Selfoss kynnir vetrarstarfið

Vetrarstarfi Leikfélags Selfoss verður ýtt úr vör með hinum árlega haustfundi í Litla leikhúsinu við Sigtún mánudaginn 12. september kl. 20:30. Á fundinum verður dagskrá vetrarins kynnt en margir stórir sem smáir viðburðir verða á dagskrá á leikárinu þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi bæði sem áhorfendur og þátttakendur. Fundurinn verður léttur og notalegur að vanda, heitt kaffi á könnunni og allir velkomnir. Sérstaklega tökum við vel á móti nýju fólki sem hefur áhuga á að bætast í hina sívaxandi leikhúsfjölskyldu eða vill kynna sér starf leikfélagsins betur.  ...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert