Kirsuberjagarðurinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu
Kirsuberjagarðurinn, síðasta og mest leikna leikrit Antons Tsjekhovs verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 28. október. Verkið er af mörgum talið eitt besta leikverk allra tíma, angurvært stórvirki þar sem gaman og alvara vegast listilega á. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir verkinu en hann hlaut Grímuverðlaun fyrir síðustu uppsetningu sína, Fjölskylduna, sem gekk tvo vetur fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu. Þýðinguna gerði Árni Kristjánsson. Halla Gunnarsóttir hannar leikmynd og búninga en hún hlaut Grímuverðlaun fyrir leikmyndahönnun á síðasta leikári fyrir leikmynd sína í Strýhærða Pétri. Sigrún Edda Björnsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Guðjón...
Read More


