Flokkur: Leiklistarskólinn

Skólareglur 2024

Reglur um umgengni í Reykjaskóla á starfstíma Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga: Nemendur sjá sjálfir um þrif á sínum herbergjum og gangi að öðru leyti vel um alla sameiginlega aðstöðu, svo sem skólastofur, ganga og salerni. Reglur íslenskra heimavistarskóla um reykingar og áfengisneyslu gilda hér nema í þeim undantekningartilfellum sem skólastýri ákveða. Tillit skal taka til þeirra sem fara fyrr að sofa en aðrir á kvöldin. Svefnstyggum skal bent á að eyrnatappar eru þarfaþing þar sem margir ganga um á mismunandi tímum. Munið að ef öllum líður vel næst mesti hugsanlegi árangur í starfi og leik! Skólastýrin verða nemendum og kennurum til aðstoðar alla vikuna. Hikið ekki við að leita til þeirra ef eitthvað amar að. Þau eru Jónheiður Ísleifsdóttir og F. Elli Hafliðason. Ef þið eigið von á gestum í skólann sem þurfa mat eða gistingu skal skilyrðislaust fá leyfi hjá skólastýrum og starfsfólki skólans og er sá sem gestinn fær jafnframt ábyrgur fyrir greiðslum vegna þessa. Bandalagið hefur sett sér verklagsreglur um viðbrögð við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi í leiklistarstarfi. Reglurnar er að finna hér. ...

Sjá meira

Leiklistarskóli BÍL 2024 – UMSÓKN

Upplýsingar og námsskrá 2024 Leiklistarskólinn - umsókn 2024 Námskeið * ---Leiklist ILeikritun I (FULLT! Hægt að skrá á biðlista)Leikstjórn IVSérnámskeið fyrir leikaraHöfundur í heimsókn (FULLT! Hægt að skrá á biðlista) Námskeið Nafn * Kennitala * Netfang * Sími * Heimilisfang * Póstnr. * Staður * Ferilskrá. Sjá námskeiðslýsingu. 120 orð eða færri. 0 of 120 max words Námskeið til vara (ekki nauðsynlegt að velja!) Leiklist ILeikritun ILeikstjórn IVSérnámskeið fyrir leikaraHöfundur í heimsókn Aðrar athugasemdir/óskir (t.d. varðandi fæði) ATH!Ef skólagjald er greitt að hluta eða öllu leyti af öðrum er áríðandi að skýrt komi fram fyrir hvern er greitt!  Millifærsla: 0334-26-5463 / Kt. 4401690239 If you are human, leave this field blank....

Sjá meira

Leiklistarskóli BÍL 2024 – Hvað verður í boði?

Leiklistarskóli BÍL verður haldinn að Reykjum í Hrútafirði dagana 15. – 23. júní í sumar. Í boði verða 4 námskeið; Leiklist I í umsjón Ágústu Skúladóttur, Leikritun I í umsjón Karls Ágústs Úlfssonar, Leikstjórn IV sem Jenný Vala Arnórsdóttir stýrir og  Sérnámskeið fyrir leikara í umsjón Rúnars Guðbrandssonar. Einnig verður boðið upp á Höfunda í heimsókn. Opnað verður fyrir umsóknir 1. mars næstkomandi. Sjá nánari upplýsingar...

Sjá meira

Leiklistarskóli BÍL 2024

STARFSTÍMI SKÓLANS ER 15. – 23. JÚNÍ 2024 AÐ REYKJASKÓLA Í HRÚTAFIRÐI. — Smella hér til að sækja um!* —   (*Opnað fyrir skráningu 1. mars kl. 12.00)   KVEÐJA FRÁ SKÓLANEFND Kæru leiklistarvinir! Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og sjöunda sinn. Skólinn blómstrar sem aldrei fyrr og við sjáum fram á mikla sköpun, metnað og gleði í sumar. Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði: Ágústa Skúladóttir mætir að nýju og nú með Leiklist I, námskeið fyrir nýliða og styttra...

Sjá meira

Leiklistarskóli BÍL 2023 – umsókn

Umsóknir á Leiklist II og Höfunda í heimsókn fara á biðlista. Enn laust á Leikstjórn III og Sérnámskeið fyrir leikara Eftir innsendingu færðu póst á uppgefið netfang. Það er því mikilvægt að tryggja að netfang sé rétt. Ef staðfesting berst ekki í pósti, hafið samband við Þjónustumiðstöð. Þú hefur ekki leyfi til að skoða þetta...

Sjá meira

Leiklistarskóli BÍL 2023

STARFSTÍMI SKÓLANS ER 17. – 25. JÚNÍ 2023 AÐ REYKJASKÓLA Í HRÚTAFIRÐI. — Smella hér til að sækja um! — KVEÐJA FRÁ SKÓLANEFND Kæru leiklistarvinir! Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og sjötta sinn. Skólinn blómstar sem aldrei fyrr og við sjáum fram á mikla sköpun, metnað og gleði í sumar. Að þessu sinni verða þrjú fjölbreytt námskeið í boði. Árni Pétur Guðjónsson mun endurnýja kynni sín við skólann og kenna Leiklist II sem er framhald af Leiklist I sem Ólafur Ásgeirsson kenndi í fyrra....

Sjá meira

Leiklistarskólinn 2022

Starfstími skólans er að þessu sinni 18. – 26. júní 2022 að Reykjaskóla í Hrútafirði.   Kveðja frá skólanefnd Kæru leiklistarvinir!Við hlökkum mikið til þess að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og fimmta sinn! Fjórfalt húrra fyrir þessum áfanga! Skólinn blómstar sem aldrei fyrr og við sjáum fram á mikla sköpun, metnað og gleði í sumar. Að þessu sinni verða þrjú fjölbreytt námskeið í boði. Við bjóðum velkominn aftur Ólaf Ásgeirsson sem kennir Leiklist I að þessu sinni. Einnig bjóðum við velkomna í fyrsta sinn í kennarahópinn, Jennýju Láru...

Sjá meira

Leiklistarskóli BÍL 2021

Námsskrá Leiklistarskóla BÍL sumarið 2021 liggur nú fyrir. Í boði verða 4 námskeið, þau sömu og ætlunin var að halda síðasta sumar þegar Covid-19 setti strik í reikninginn og skólahald var fellt niður. Breyting hefur þó orðið á kennurum á tveimur námskeiðum. Nánari upplýsingar um skólahaldið er að finna hér. Opnað verður fyrir umsóknir hér 14. mars kl. 16.00. Þeir nemendur sem ekki fengu staðfestingargjald að fullu endurgreitt í fyrra er þegar skráðir á viðkomandi...

Sjá meira

Leiklistarskólinn 2021

Starfstími skólans er að þessu sinni 19. – 27. júní 2021 að Reykjaskóla í Hrútafirði.  Kveðja frá skólanefnd Kæru leiklistarvinir!Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og fjórða sinn. Skólahald féll niður vegna Covid-19 síðasta sumar eins og allir vafalaust vita. Við vonum að þetta skólaár verði engu að síður sama uppspretta metnaðar, sköpunar og gleði og verið hefur öll þau ár síðan skólinn var fyrst settur.Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði. Við bjóðum velkominn Ólaf Ásgeirsson sem kennir hjá okkur í fyrsta sinn og verður með Leiklist II, sem er framhald af námskeiðinu sem Aðalbjörg Árnadóttir var með í hittifyrra. Einnig bjóðum við velkomna í fyrsta sinn í kennarahópinn, Völu Fannell sem kenna mun Leikstjórn I. Þá fögnum við því að fá Evu Björgu Harðardóttur og Ingvar Guðna Brynjólfsson til okkar með framhald á námskeiðinu Bak við tjöldin sem Eva Björg stýrði 2018 en Ingvar er hinsvegar að kenna við skólann í fyrsta sinn. Sérnámskeið um leikarann sem skapandi listamann verður svo í höndum hins þrautreynda kennara Rúnars Guðbrandssonar.Við vonum að sem flestir eigi þess kost að nema og njóta.Hlökkum til að sjá ykkur – með bestu kveðju,
 Hrefna, Dýrleif, Herdís, Hrund og Gísli   Leikstjórn I – Grunnnámskeið Kennari Vala FannellÞátttökugjald: 104.500 kr.Námskeiðið er grunnnámskeið fyrir leikstjóra. Þeir ganga fyrir sem ekki...

Sjá meira
Loading

Vörur

Nýtt og áhugavert