Föstudaginn 6. mars kl 19.00 frumsýnir Borgarleikhúsið stærstu sýningu sem sett hefur verið upp í húsinu en 69 listamenn taka þátt í henni, það eru 34 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.

Billy er á leiðinni í boxtíma þegar hann lendir fyrir slysni á dansæfingu. Hann byrjar að hreyfa sig í takt við tónlistina og uppgötvar sér til furðu að þetta er ekki einungis það skemmtilegasta sem hann hefur gert heldur er hann einfaldlega fæddur til að dansa.

Billy á sér draum sem samræmist ekki hugmyndum fullorðna fólksins, hann dreymir um að verða dansari á heimsmælikvarða og er tilbúinn að leggja allt í sölurnar. Billy Elliot er þroskasaga unga fólksins og hinna fullorðnu – mögnuð og falleg saga um baráttu drengs við fordóma samfélagsins og fjölskyldunnar um að fá að vera sá sem hann er. Þetta er kraftmikið verk um alvöru fólk með skotheldri og grípandi tónlist eftir Elton John, stórfenglegum hópdansatriðum og ótrúlega hæfileikaríkum dreng í aðalhlutverki sem á eftir að fá áhorfendur til að gapa af undrun.

Söngleikurinn um Billy Elliot var frumsýndur á West End í London árið 2005 og hefur vakið gríðarlega athygli um víða veröld. Sýningin hlaut mikið lof og fjölda verðlauna og er nú loksins komin í Borgarleikhúsið undir stjórn sama hóps og færði okkur Mary Poppins. Hér blandast saman blússandi húmor og stórkostleg dans- og söngatriði svo úr verður sannkölluð flugeldasýning með einvala liði leikara og auðvitað íslenskum Billy.

Aðstandendur Höfundur: Lee Hall & Elton John | Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson  | leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson |Tónlist: Elton John | Danshöfundur: Lee Proud Leikmynd: Petr Hlousek | Búningar: Helga I. Stefánsdóttir  | Lýsing: Þórður Orri Pétursson |  Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen| Leikarar: Baldvin Alan Thorarensen, Hjörtur Viðar Sigurðarson, Sölvi Viggósson Dýrfjörð, Jóhann Sigurðarson, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Jensson, Halldór Gylfason, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Álfrún Örnólfsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Sigurður Þór Óskarsson, Örn Árnason og fleiri.