Leikfélagið Sýnir ætlar að sýna fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal dagana í lok sumars, nánar til tekið dagana 31. ágúst til 7. september. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, þar sem áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér að vernda fátæka bændur fyrir ofríki grimmra ræningja. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er Guðmundur Erlingsson.

Fátækir bændur í ónefndu þorpi hafa lengi þurft að búa við ofríki ræningja sem ræna uppskeru þeirra og konum og brenna þorpið ef þeir eru óánægðir með ránsfenginn. Að lokum er bændunum nóg boðið, þeir ákveða að leita að samúræjum sem tilbúnir eru að fórna lífi sínu fyrir þurrt fleti og skál af hrísgrjónum á dag. Þeim tekst að finna sjö hugrakka samúræja en er það nóg til að verjast fjölmennum hópi ræningja?

Sýningar verða:
Laugardaginn 31. ágúst
Sunnudaginn 1. september
Föstudaginn 6. september
Laugardaginn 7. september

Sýningar hefjast kl. 20. Miðaverð er 2.000 kr en 1.000 kr. fyrir börn. Lagt er af stað frá Félagsheimili Orkuveitunnar.