Leikfélag Selfoss er enn í 60 ára afmælisgírnum og er því í óða önn ađ setja upp metnaðarfulla barna- og fjölskyldusýningu sem stefnt er að frumsýna þann 12. október næstkomandi.

Á síđustu vikum hefur mikiđ gengið á enda andi fantasíunnar verið yfir leikhúsinu og leikhópurinn dvalið í heimi ljóða og ævintýra.

Verkiđ er samsköpun leikstjórans og leikhópsins byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og Stóra Kláus, ljóðinu um Sálina hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson, stórskemmtilegum dýrgripum úr gullkistu ævintýranna.

Æfingar ganga ljómandi vel enda engin önnur en snillingurinn hún Ágústa Skúladóttir sem leikstýrir hópnum að þessu sinni. Ágústa hefur sett upp fjöldan allan af leiksýningum bæði hér og erlendis hvort sem er í áhuga- eđa atvinnuleikhúsum. Hún hefur unnið til ýmissa verðlauna gegnum tíðina, nú síðast hlaut hún Grímuna – barnasýning ársins 2018, fyrir sýninguna Í Skugga Sveins eftir Karl Ágúst Úlfsson.

Miđasala fer fljótlega í gang en í millitíðinni hvetjum við alla til ađ bæta „leik-selfoss“ viđ á Snapchat og fylgjast með, þađ er aldrei að vita hverju LS-félagar taka upp á! Eins má fylgjast með á Facebook og á www.leikfelagselfoss.is.

Fylgist vel með, það vill enginn missa af þessari ævintýralegu sýningu, stútfullri af góðum húmor, tónlist og söng.