Kómedíuleikhúsið fer í haustleikferð um Vestfirði og Vesturland með tvö af sínum vinsælu leikverkum. Leikferðin stendur yfir dagana 9. – 24. september og verður sýnd ein sýning á dag alla dagana og það á 16 stöðum. Sýnd verða leikritin Jón Sigurðsson strákur að vestan og Bjarni á Fönix sem bæði hafa fengið ferska og góða dóma áhorfenda. Leikirnir verða sýndir hver á eftir öðrum en gert verður stutt hlé á milli leikrita. Haustleikferðin hefst í Búðardal 9. september og lýkur í Súðavík 24. september.

Leikferðin öll verður á þennan veg:

9. september föstudagur kl.20.00: Búðardalur – Leifsbúð
10. september laugardagur kl.20.00: Rif – Frystiklefinn
11. september sunnudagur kl.20.00: Grundarfjörður – Kaffi 59
12. september mánudagur kl.20.00: Drangsnes – Félagsheimilið
13. september þriðjudagur kl.20.00: Hólmavík – Kaffi Riis
14. september miðvikudagur kl.20.00: Reykhólar –  Báta og hlunnindasalurinn
15. september fimmtudagur kl.20.00: Barðaströnd – Birkimelur
16. september föstudagur kl.20.00: Patreksfjörður – Sjóræningjahúsið
17. september laugardagur kl.20.00: Tálknafjörður – Dunhagi
18. september sunnudagur kl.20.00: Bíldudalur – Vegamót
19. september mánudagur kl.20.00: Ísafjörður – Hamrar
20. september þriðjudagur: Flateyri – Vagninn
21. september miðvikudagur: Suðureyri – Talisman
22. september fimmtudagur: Þingeyri – Veitingahornið
23. september föstudagur: Bolungarvík – Félagsheimilið
24. september laugardagur: Súðavík – Melrakkasetrið

Miðaverð er aðeins 1.900.- krónur. Nánari upplýsingar um leikverkin hér að neðan.

Jón Sigurðsson strákur að vestan
Höfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson
Búningar/Leikmynd: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Leikstjórn: Ársæll Níelsson

Sómi Íslands sverð og skjöldur. Frelsishetjuna Jón Sigurðsson frá Hrafnseyri þekkja allir og þá einkum afrek hans í Danaveldi. En var var Jón Sigurðsson og hvaðan kom hann? Hvað var það sem mótaði hann og gerði að öflugum talsmanni þjóðarinnar? Í þessu verki fáum við að kynnast piltinum Jóni Sigurðssynni og æskuárum hans á Hrafnseyri. Verkið er sérstaklega samið í tilefni af 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar.

Bjarni á Fönix
Leikari: Ársæll Níelsson
Höfundar: Ársæll Níelsson, Elfar Logi Hannesson
Leikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Leikstjórn: Elfar Logi Hannesson

Skipherrann Bjarni Þorlaugarson á skútunni Fönix háði frækinn bardaga við hátt í 30 Fransmenn um miðja nítjándu öld. Bardaginn stóð yfir í heila fjóra klukkutíma, að vísu tóku menn sér stutta pásu í miðjum átökum, og gekk Bjarni óskaddaður af vettvangi. Skömmu síðar fannst sjórekið lík af einum Fransmanni og voru uppi kenningar um að Bjarni hafi orðið hans bani. Mál var dómtekið og þurfti Bjarni þá að spyrja sig þeirrar samviskuspurningar: Drap ég mann eða drap ég ekki mann?

{mos_fb_discuss:2}