|
Metnaðarfullt gaman á Seltjarnarnesi |
|
|
|
Jóhanna Ástvaldsdóttir og Grétar Guðni Guðmundsson eru bæði
stofnfélagar í Leiklistarfélagi Seltjarnarness sem hefur verið
starfrækt frá árinu 1998. Þau ásamt öðrum meðlimum leiklistarfélagsins
vinna nú að uppsetningu verksins Margt býr í þokunni eftir William
Dinner og William Morum í þýðngu Ásgerðar Ingimarsdóttur. Verkið, sem
er í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar, verður frumsýnt 19. apríl í
félagsheimili Seltjarnarness og er því mikið um að vera hjá þeim
félögum á lokasprettinum enda mikill metnaður að baki sýningarinnar.
|
|
Lesa meira...
|
|
"Gott að minnast þess hve lánsöm við erum" |
|
|
|
Fulltrúi Leiklistarvefsins heldur áfram umfjöllun um áhugaleikhópinn Fire and Ice Theatre á Keflavíkurflugvelli: "Þetta verk hentar einstaklega vel á þessum tíma nú þegar jólin nálgast. Það gerir okkur öllum gott að minnast þess hversu lánsöm við í raun erum og þetta verk hjálpar svo sannarlega til við það. Það minnir okkur á hversu lánsöm við erum að fá að lifa öruggu lífi hér á meðan aðrir eru að berjast í fremstu víglínu og fórna lífi og limum," segir Freddie Bazen, einn fjögurra hermanna í Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli sem þátt taka í leiklestri á The Christmas Truce sem flutt verður í Kanaútvarpinu nú í jólavikunni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Gaman að sjá allt ganga upp |
|
|
|
Meðlimir Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafa sl. aldarfjórðung rekið leikhópinn Fire and Ice Theatre. Fulltrúi Leiklistarvefsins heimsótti leikhópinn og fékk að fylgjast með upptökum á tveimur útvarpsleikritum tengdum jólunum sem útvarpað verður uppi á velli síðar í vikunni.
|
|
Lesa meira...
|
Leikfélag
Hafnarfjarðar sýnir um þessar mundir einleikinn Kontrabassann eftir
Patrick Süskind í þýðingu Hafliða Arngrímssonar og Kjartans Óskarssonar
í leikstjórn Gunnars B. Gunnarssonar.
Greinarhöfundur
tók hús á þeim Gunnari B. Guðmundssyni leikstjóra og Halldóri
Magnússyni stórleikara eitt síðkvöld í nýliðinni viku þar sem þeir voru
við æfingar á Kontrabassanum eftir Patrick Süskind sem Leikfélag
Hafnarfjarðar frumsýndi síðastliðinn laugardag. Þeir fengust með lagni
til þess að setjast niður og svara nokkrum spurningum yfir kaffibolla.
Mín fyrsta spurning er hvað hefði komið til að þeir völdu að setja upp
Kontrabassann. Gunnar er fljótur til svars enda ræðinn með afbrigðum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
|