|
Mánudagur, 14. maí 2012 09:20 |
|
Fastur, frumsamin leiksýning án orða, verður frumsýnd í Norðurpólnum kl. 20.00 næstkomandi fimmtudag, 17. Maí. Leikari og höfundur verksins er Benedikt Karl Gröndal. Honum til leikstjórnar og aðstoðar við höfundaverkið er Árni Kristjánsson. Í verkinu er kröftug og kynngimögnuð hljóðmynd sem er í höndum plötusnúðsins Einars Helgasonar.
|
|
Nánar...
|
|
Leikfélag Seyðisfjarðar frumsýnir Pelíkanann |
|
Föstudagur, 11. maí 2012 09:58 |
|
Föstudaginn 11. maí frumsýnir Leikfélag Seyðisfjarðar leikritið Pelíkaninn eftir Seyðfirðinginn Ágúst Torfa Magnússon sem jafnframt er leikstjóri. Pelíkaninn er þriðja leikritið sem Ágúst skrifar fyrir Leikfélag Seyðisfjarðar, áður hefur skrifað verkin Kallarðu þetta leikrit? og Þetta er bara prinsippmál! sem hann skrifaði ásamt Snorra Emilssyni. Sýnt er í Félagsheimilinu Herðubreið, Seyðisfirði og hefjast sýningar kl. 20.30.
|
|
Nánar...
|
|
Bræður – fjölskyldusaga á Listahátíð í júní |
|
Föstudagur, 11. maí 2012 09:26 |
|
Framleiðsla og æfingar á sýningunni Bræður – fjölskyldusaga eru í fullum gangi í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Verkið er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Vesturports, borgarleikhússins í Malmö og Teater Får302 í Kaupmannahöfn. Íslendingum gefst kostur á að fylgja þessu metnaðarfulla verkefni úr hlaði í vor því ferðalag norrænu uppfærslu verksins hefst á tveimur sýningum á Listahátíð þann 1. og 2. júní, í flutningi danskra, sænskra og íslenskra leikara. Sýningin verður svo frumsýnd á íslensku á næsta leikári í Borgarleikhúsinu með íslensku leikaraliði.
|
|
Nánar...
|
|
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn á Akureyri |
|
Miðvikudagur, 09. maí 2012 11:50 |
|
Á morgun, fimmtudaginn 10. maí kl. 20:00, mun Sigurður Skúlason sýna einleikinn Hvílíkt snilldarverk er maðurinn, í Samkomuhúsinu á Akureyri. Verkið er unnið upp úr verkum Shakespears og hefur fengið afburða góða gagnrýni. Verkið hefur verið sýnt í Þjóðleikhúsinu í vetur og er einnig nýkomið úr leikferð um Austurland þar sem það var sýnt 6 sinnum fyrir fullu húsi. Aðeins er um þessa einu sýningu að ræða.
|
|
Nánar...
|
|