BÍL
neata2010banner01

Póstlistar

Viltu gerast áskrifandi?
Leiklist.is - Vikupóstur
Fréttaskot BÍL
Skólapóstur



arsri2009tbanner
aboutus.png

Leit á vefnum

Nýjar fréttir

(08.09.10)
Skepna frumsýnt á Norðurpólnum
Þann 10. September nk. hefjast...
(06.09.10)
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum...
(03.09.10)
Tjarnarbíó opnað 1. október
Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun...
(25.08.10)
Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir áttunda örverkið...
(19.08.10)
Leikfélagið Sýnir frumsýnir Allir komu þeir aftur
Leikfélagið Sýnir  frumsýnir leikverkið Allir...
hugleikur.gif
mosfellssveit.gif
Upphafssíða Fréttir Námskeið & hátíðir
Námskeið & hátíðir
Úr heimi leiksviðslistanna - Námskeið hjá Endurmenntun HÍ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
jonvidar
Í október stendur Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands fyrir námskeiði sem ber yfirskriftina Úr heimi leiksviðslistanna. Fyrirlesari er Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur. Á námskeiðinu er farið yfir leiklistarsöguna frá fyrstu heimildum um hana, allt til okkar daga. Fyrirlestrarnir verða á mánudögum kl. 20.15, skráningarfrestur er til 27. september 2010 og hægt er að skrá sig hér.
Lesa meira...
 
Námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús í september Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

leikhuslysLaugardagana 4., 11. og 18. september frá kl. 9:00 - 13:00 verður boðið upp á námskeið í leikhúslýsingu í Tækniskólanum, Skólavörðuholti. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri og verða kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Kennari er Benedikt Axelsson lýsingahönnuður og námskeiðsgjald er 26.000 kr.
Lesa meira...
 
Alþjóðleg leiklistarhátíð á Akureyri 10-15. ágúst Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
logoneata2010small
Dagana 10.-15. ágúst heldur Bandalag íslenskra leikfélaga fjölþjóðlega leiklistarhátíð í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hátíðin er á vegum NEATA, Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðsins og verða þar sýndar leiksýningar frá öllum Norðurlöndunum, Lettlandi, Litháen, Rúmeníu og Frakklandi. Hátíðin verður sett að kvöldi þriðjudagsins 10. ágúst og verða allar leiksýningar og aðrir viðburðir hátíðarinnar í Menningarhúsinu Hofi. Alls er reiknað með að um 250 manns taki beinan þátt í hátíðinni.
Lesa meira...
 
Alþjóðleg leiklistarhátíð áhugamanna í Tromsö 2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
hotell_fyrverkeri_2Alþjóðlega áhugaleikhúsráðið, IATA, skipuleggur reglulega leiklistarhátíðir víðs vegar um heiminn, sú síðasta var haldin í Mónakó 2009. Næsta IATA-hátíð verður haldin í Tromsö í Noregi dagana 14. til 24. júlí 2011. Bandalag íslenskra leikfélaga hefur sótt um að senda íslenska sýningu á hátíðina og auglýsir hér með eftir leikfélögum sem hafa áhuga á að taka þátt. Ef fleiri en einn hópur sækir um verður skipuð dómnefnd sem velur milli umsækjenda.
Lesa meira...
 
Sýningar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.-15. ágúst Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
hjarta
Þá liggur fyrir hvaða sýningar verða sýndar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.–15. ágúst nk. Dómnefnd valdi sýninguna Umbúðalaust hjá Leikfélagi Kópavogs, sem opnunarsýningu hátíðarinnar og sýningar Birting hjá Leikfélagi Selfoss og Vínland hjá Freyvangsleikhúsinu þar að auki, en þrjá íslenskar sýningar verða á hátíðinni þar sem Eistland sá sér ekki fært að senda fulltrúa.
Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 10
info@leiklist.is - sími: 551-6974 / 562-2944 - Fax: 562-2984 - Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavik - kt. 440169-0239 - Vefstjori: lensherra@leiklist.is