| Ásgeir Sigurvaldason |
|
|
Sími: 868 9876 Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Ásgeir er sérmenntaður leikstjóri og hefur sviðsett um 20 leikrit af ólíkum toga, þar á meðal klassísk verk, drama, kómedíu, söngleik og tilraunaleikhús. Eftir að hafa bætt við sig og útskrifast úr námi í kennslufræðum leiklistar við Listaháskóla Íslands vorið 2006 hefur Ásgeir kennt leiklist við Grunnskóla Seltjarnarness þar til fyrir skemmstu en er laus í verkefni frá áramótum 2010. Veturinn 2005 setti Ásgeir upp og þýddi gamanleik fyrir Leikfélags Vestmannaeyja. Leikritið er eftir Neil Simon og heitir Makalaus Sambúð og gerir ráð fyrir 6. kvenhlutverkum og 2. karlmanna. Þetta var frumsýning á Íslandi og þótti takast fádæma vel. Ásgeir lærði leiklist við Leiklistaskóla Íslands, New York University og University of California og lauk MFA prófi þaðan árið 1989 í leikstjórn. Hann lauk námi í kennslufræði leiklistar við LHÍ vorið 2006. Ásgeir vinnur með hugmyndir David Mamet um leiktækni og nýtur áhrifa frá Grotowski og Stanislavsky til að skapa eigin aðferð. Ásgeir naut þeirra forréttinda að vinna undir leiðsögn Grotowski í sex ár í Kaliforníu. Auk Þjóðleikhússins hefur Ásgeir sett upp hjá Stúdentaleikhúsinu, leikfélaginu á Siglufirði, Skagaströnd, Borgarfirði eystra og Fjölbraut í Breiðholti. Ásgeir flutti frá Svíþjóð haustið 2003. Undanfarin ár hefur Ásgeir gengt ýmsum trúnaðarstöðum og má þar nefna að vera fulltrúi Leikstjórafélagsins í valnefnd Grímunnar, hann var trúnaðarmaður kennara við Mýrarhúsaskóla og einnig hefur hann setið í stjórn Félags um leiklist í skólastarfi, FLÍSS og sótt þar fjölda námskeiða.
|
info@leiklist.is
- sími: 551-6974 / 562-2944 - Fax: 562-2984 - Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavik - kt. 440169-0239 - Vefstjori:
lensherra@leiklist.is