|
Alþjóðlegi leiklistardagurinn er á morgun! |
|
|
|
|
Ávörp á Alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars
Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóðlega leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjöld leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld. Ávarpið semur að þessu sinni Ragnheiður Skúladóttir, deildarforseti leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands.
Frá árinu 1962 hefur Alþjóðlegi leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja ávarp í tilefni dagsins af Alþjóða leiklistarstofnuninni, ITI, sem hefur aðsetur í Unesco-byggingunni í París. Að þessu sinni er það Dame Judy Dench leikkona.
|
|
Lesa meira...
|
|
Annáll Kómedíuleikhússins 2009 |
|
|
|
 ,,Nú árið er liðið í...” Jedúddý mía, hvað tíminn líður hratt, enn eitt árið að baki og óhætt að segja að það hafi verið sögulegt á landi voru. Árið hjá hinu Kómíska atvinnuleikhúsi á Ísafirði hefur líka verið viðburðaríkt fullt af ævintýrum og óvæntum uppákomum. Ekki var setið auðum höndum frekar en venjulega enda Kómedíuleikarinn verið ofvirkur og hefur heldur bætt í á liðnu ári. Verkefni Kómedíuleikhússins árið 2009 voru fjölbreytt og fjörug. Alls voru frumsýnd 5 ný íslensk verk, Act alone haldin sjötta árið í röð, ný þjóðleg hljóðbók kom út, Einstök sýning í Haukadal og Listamannaþing Vestfjarða haldið á Ísafirði svo nokkuð sé nefnt. Kómedíuleikarinn mun nú setjast í sæti skrifara og greina frá því helst á því herrans ári 2009 í starfsemi Kómedíuleikhússins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ályktun gegn ósanngjörnum niðurskurði til Bandalagsins |
|
|
|
 Á haustfundi Bandalags íslenskra leikfélaga var samþykkt ályktun til að mótmæla þeim gríðarlega niðurskurði sem áhugaleikfélög verða fyrir á fjárlögum næsta árs. Það kom áhugaleikfélögunum á Íslandi auðvitað ekkert á óvart að framlög til starfseminnar yrðu skorin niður á næsta ári. Við núverandi aðstæður er annað nánast óhugsandi. Það kom á hinn bóginn mjög á óvart hvað fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir miklum niðurskurði. En þó einkum að niðurskurður til þessarar starfsemi er miklum mun meiri en til annarrar liststarfsemi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Blikur á lofti í starfi sjálfstæðra leikhúsa |
|
|
|
 Áhrifa efnahagslægðar á Íslandi er farið að gæta í starfi sjálfstæðra leikhúsa. Á komandi leikári munu færri uppsetningar líta dagsins ljós miðað við fyrri ár, meðal annars vegna húsnæðisskorts hafa fleiri atvinnuleikhópar sótt á náðir stofnanaleikhúsanna með uppsetningar sínar og leikhópar sækja í auknum mæli til útlanda.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ávarp Alþjóða leiklistardagsins, 27. mars 2009 |
|
|
|
|
Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóða leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjald leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld. Ávarpið semur að þessu sinni Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona.
Frá árinu 1962 hefur Alþjóða leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja ávarp í tilefni dagsins af Alþjóða leiklistarstofnuninni, ITI, sem hefur aðsetur í Unesco-byggingunni í París. Að þessu sinni er það brasilíski leikhúslistamaðurinn Augusto Boal sem semur alþjóðaávarpið í tilefni dagsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Í dag er alþjóðlegur leikhúsdagur barna |
|
|
|
|
Alþjóðlegi barnaleikhúsdagurinn er haldinn ár hvert að frumkvæði ASSITEJ International alþjóðasamtaka um barna- og unglingaleikhús. Með samskiptaneti sem tengir saman þúsundir leikhúsa og einstaklinga um allan heim hvetur ASSITEJ leikhúslistamenn sem vinna að leiksýningum fyrir börn og unglinga að slá hvergi af listrænum kröfum í starfi sínu. ASSITEJ leitast við að sameina ólíka menningarheima og kynþætti í baráttu fyrir friði, jafnrétti, umburðarlyndi og menntun.
Í tilefni af alþjóðlegum leikhúsdegi barna í ár hefur Þórarinn Eldjárn, að beiðni Samtaka um barna- og unglingaleikhús á Íslandi, samið eftirfarandi ávarp.
|
|
Lesa meira...
|
|
Annáll Kómedíuleikhússins 2008 |
|
|
|
,,Tíminn flýgur áfram einsog segir í kvæðinu, enn eitt Kómískt ár að
baki og óhætt að segja að árið 2008 hafi verið sögulegt á margan hátt.
Tvær nýjar sýningar voru frumsýndar á árinu, Act alone var haldin
fimmta árið í röð og fékk Menningarverðlaun DV, tvö ný leikverk voru
frumsýnd og þannig mætti lengi telja. Elfar Logi Hannesson,
Kómedíuleikarinn, fer hér yfir hinn Kómíska veg annó 2008.
|
|
Lesa meira...
|
|
Theatre in Iceland 2006-2008 |
|
|
|
|
Ritið Theatre in Iceland er komið út. Ritið sem er á ensku inniheldur upplýsingar um leiksýningar og leiklist á Íslandi á árunum 2006 til 2008.
Hér er hægt að nálgast ritið á PDF-formi.
|
|
Bingó í Riga Ferðasagan |
|
|
|
Þann 2. ágúst sl. sté fríður hópur áhugaleikara úr Leikfélagi Kópavogs og Hugleik uppí flugvél og hélt á vit ævintýranna í Riga, höfuðborg Lettlands. Ætlunin var að sýna leikritið Bingó, sem félögin settu upp saman fyrir tveimur leikárum, á Norður-evópsku leiklistarhátíðinni sem haldin var þar í borg. Ásta Gísladóttir var með í hópnum og ritaði ferðasöguna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sýning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu fer í Þjóðleikhúsið |
|
|
|
Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga í Skagafirði núna um helgina
tilkynnti Tinna Gunnlaugsdóttir, Þjóðleikhússtjóri, hvaða leiksýning
var valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin árið 2008. Fyrir valinu
varð uppsetning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu eftir Ken Kesey og
Dale Wasserman í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar og verður hún því
sýnd í Þjóðleikhúsinu í lok leikárs.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ávarp Alþjóða leiklistardagsins, 27. mars 2008 |
|
|
|
|
Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóða leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjald leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld. Dagblöð hafa gjarnan birt ávarpið og það hefur birst á ýmsum vefsíðum menningarstofnana og fjölmiðla. Ávarpið semur að þessu sinni leikarinn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson.
Frá árinu 1962 hefur Alþjóða leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja ávarp í tilefni dagsins af Alþjóða leiklistarstofnuninni, ITI, sem hefur aðsetur í Unesco-byggingunni í París. Að þessu sinni er það kanadíski leikhúsfrömuðurinn, leikstjórinn og leikarinn Robert Lepage sem semur alþjóðaávarpið í tilefni dagsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Annáll Kómedíuleikhússins 2007 |
|
|
|
Það er gamall og góður íslenskur siður að líta um öxl við áramót og
kikka á hvað maður hafi nú verið að brasa á árinu sem er að líða. Árið
2007 hefur sannarlega verið mjög fjörugt og Kómískt hjá
Kómedíuleikhúsinu. Meðal verkefna ársins eru 4 nýjar leiksýningar, Act
alone leiklistarhátíðin var haldin í fjórða sinn, tvær hljóðbækur voru
gefnar út og Sparikallinn varð til svo eitthvað sé nefnt.
Kómedíuleikarinn sérlegur ritari, leikari, leikhússtjóri og ræstitæknir
Kómedíu rekur hér annál Kómedíuleikhússins árið 2007. Eða einsog við
segjum á Kómísku máli: Annó Kómedí 2007. Gjörið svo vel.
|
|
Lesa meira...
|
|
Danir í heimsókn hjá Leikfélagi Húsavíkur |
|
|
|
Í október sl. kom danskt vina leikfélag, Bagsværd Amatør Scene í
heimsókn til Leikfélags Húsavíkur. Bagsværd Amatør Scene og Leikfélag
Húsavíkur hafa verið vinaleikfélög til margra ára og heimsótt hvort
annað í gegnum árin. Í ár kom BAS með sýninguna Jøklen Brænder sem
byggir á íslenskri þjóðsögu en handritið skrifaði Grete Thorulf. Anne
Bille leikstýrði sýningunni, en hún er meðlimur í Bagsværd Amatør Scene.
|
|
Lesa meira...
|
Leikfélag Selfoss brá á haustdögum undir sig betri fætinum og fór með sýninguna Hnerrinn, eftir Anton Chekov á leiklistarhátíð í Roskisis í Litháen. Formaður félagsins, Guðfinna Gunnarsdóttir, var í leikhópnum og ritaði ferðasögu sem hér er birt með góðfúslegu leyfi Suðurgluggans.
|
|
Lesa meira...
|
|
Kveðja frá Guðrúnu Höllu, fráfarandi formanni Bandalagsins |
|
|
|
|
Kæru vinir og félagar!
Að afstöðnu mjög velheppnuðu bandalagsþingi á Hallormsstað langar mig að þakka ykkur sem þar voruð ánægjulega samveru og samvinnu um helgina og falleg orð í minn garð. Ykkur, sem ekki áttuð heimangengt sem og þeim heppnu sem voru á Hallormsstað, vil ég þakka afar ánægjuleg samstarf og samveru í bandalagsstarfinu síðustu 15 ár. Ég ákvað fyrir nokkrum dögum síðan að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi formannsstarfa og afhenti kyndilinn með ljúfsárum söknuði til Togga (Þorgeirs Tryggvasonar) sem ég veit að mun sinna starfinu með miklum sóma.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygliverðasta áhugaleiksýning ársins - Umsögn dómnefndar |
|
|
|
|
Dómnefnd Þjóðleikhússins hefur valið sem áhugaverðustu áhugaleiksýninguna 2006-2007
Listina að Lifa, sýningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs á verki Sigríðar
Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar.
Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga, Hallormsstað.
Greinargerð dómnefndar má lesa hér.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ávarp Alþjóða leiklistardagins, 27. mars 2007 |
|
|
|
|
eftir Bernd Ogrodnik
Mannsandinn er uppspretta endalausra vangaveltna, hláturs og gráturs, en það er sama hvernig við lítum á tilveru okkar, það er nær ómögulegt að skilja mikilfengleik hennar.
Stærsta gjöf listamannsins til mannkyns er ef til vill að geta á einhvern hátt tjáð það sem rökhugsun getur aldrei að fullu höndlað og kynslóðir vísindamanna ná aldrei að skýra að fullu lífið sjálft.
Í æsku sýndum við leikrænu starfi hollustu, í viðleitni okkar til að
höndla lífið ... við kölluðum það leik. En svo gerðist eitthvað og við
hættum þessum barnaskap, fyrir utan fá okkar sem gerðum hann að
ævistarfi. Það sem gerðist var að hið vitræna tók yfir og strikaði yfir
allar þversagnirnar...... og sjáið hvert það hefur leitt okkur.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ávarp á alþjóðlega Barnaleikhúsdeginum |
|
|
|
20. mars 2007.
Það verður aldrei lögð of mikil áhersla á það hversu mikilvægt gott leikhús er fyrir börn. Börn eiga ekki auðvelt með að segja okkur hvers vegna þau eru reið, hrædd eða fyrir hvað þau skammast sín og við eigum stundum erfitt með að giska á það. Vandaðar leiksýningar og góðar sögur eru þeirra sálgæsla. Góð saga sem hefur slípast í meðförum kynslóð eftir kynslóð og býður þeim afgerandi lausn þar sem allt fer vel að lokum og hið góða sigrar hið illa - hún getur hjálpað þeim að greiða úr sterkum tilfinningum. Það sama gildir um vel unna og úthugsaða barnaleiksýningu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Theatre in Iceland 2004-2006 |
|
|
|
Ritið Theatre in Iceland sem Leiklistarsamband Íslands og Menntamálaráðuneytið gefa út er nú tiltækt hér á vefnum. Ritið fjallar aðallega um leiksýningar atvinnuleikhúsa á Íslandi árin 2004 til 2006 en einnig er yfirlit yfir frumuppfærslur áhugaleikhúsanna á íslenskum verkum. Einnig má finna þar upplýsingar um handhafa Grímunnar umrætt tímabil auk ýmissa annarra upplýsinga. Ritið er á ensku enda fyrst og fremst ætlað til kynningar erlendis á íslensku leikhúslífi. Theatre in Iceland er að finna á PDF-formi hér.
|
|
Velheppnuð fyrirlestrahelgi í Hafnarfirði |
|
|
|
Nú um helgina stóð Leiklistarskóli Bandalagsins í fyrsta skipti fyrir fyrirlestrahelgi. Í þetta skiptið var umræðuefnið "Hinar þúsund þjalir leikstjórans" þar sem fjallað var um samvinnu leikstjórans við hina listrænu hönnuði leiksýningarinnar.
Snillingarnir Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahönnuður, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir búningahönnuður, Ásta Hafþórsdóttir leikgervahönnuður og Egill Ingibergsson ljósahönnuður leiddu þáttakendur í allan sannleika um hina óteljandi möguleika sem felast í leikhúsinu. Hin geðþekka leikhússkona Sigrún Valbergsdóttir stjórnaði síðan af röggsemi umræðum milli fyrirlesara og þáttakenda. Á sunnudag hélt fólk svo heim uppfullt af hugmyndum um hvernig ætti að framkalla töfra leiksviðsins
|
|
Lesa meira...
|
|
Ávarp Tankred Dorst, leikskálds |
|
|
|
Í tilefni af Alþjóða leikhúsdeginum 27. mars 2003 Ávarpið er samið að beiðni Alþjóða leikhúsmálastofnunarinnar ITI. |
|
Lesa meira...
|
|
Alþjóðlegi leikhúsdagurinn 27. mars 2003 |
|
|
|
Ávarpið skrifar Þráinn Karlsson leikari á Akureyri. |
|
Lesa meira...
|
|
Nýársheit áhugaleikarans 2003 |
|
|
|
Hver skyldu vera nýársheit áhugaleikarans 2003?
|
|
Lesa meira...
|
|
Metsölulisti Bandalagsins, fyrri hluti - mest seldu leikritin 2002 |
|
|
|
|
Topp 10 listar Þorgeirs Tryggvasonar |
|
|
|
Hér er að finna hina bráðskemmtilegu topp 10 (og 5) lista Þorgeirs Tryggvasonar.
|
|
Lesa meira...
|
|
|