|
Rokkhjartað slær á Grandanum |
|
|
|
Hugleikur Rokk Leikstóri: Þorgeir Tryggvason
Það var nokkuð tilhlökkunarefni að koma í fyrsta skipti á sýningu hjá Hugleik í litla leikhúsinu þeirra á Eyjaslóðinni. Þau hafa alllengi verið á þeytingi um Reykjavík með sýningar sínar og jafnvel þurft að fara í úthverfi eins og Kópavog og Seltjarnarnes. Það sem má segja um húsið er að mér finnst það voða, voða lítið en þegar ég rifja upp fyrstu sýninguna sem ég sá hjá þeim Hugleikurum á Galdraloftinu í Hafnarstræti, þá er þetta nú bara höll.
Lárus Vilhjálmsson skrifar um sýningu Hugleiks á Rokki
|
|
Lesa meira...
|
|
Bráðskemmtilegur leikur á Melum í Hörgárdal |
|
|
|
|
Leikfélag Hörgdæla Lífið liggur við Leikstjóri: Saga Jónsdóttir
Það var sérkennilegt að ganga inn í gamla samkomuhúsið á Melum s.l. laugardagskvöld. Gengið var inn á gömlu senuna og búið að útbúa svið á miðju dansgólfinu með þrjár sætaraðir á þrjá vegu. Góð hugmynd sem gekk fullkomlega vel upp, svo vel að undarlegt er að engum hafi dottið þetta í hug fyrr. Sem fyrr hjá Leikfélagi Hörgdæla var margt góðra áhugaleikara sem náð hafa undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur að skapa skörp skapgerðareinkenni hjá persónum leiksins.
Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal skrifar um sýningu Leikfélags Hörgdæla
|
|
Lesa meira...
|

Leikfélag Selfoss Birtíngur eftir Voltaire í leikgerð Hafnarfjarðarleikhússins Leikstjóri: Ólafur Jens Sigurðsson
„Bjart og fallegt“. Það fyrsta sem kom mér í hug þegar ég settist niður í leikhúsinu við Sigtún á Selfossi og beið eftir Birtíngi. Ljósmálað svið, litmildu munstri varpað á bakvegg, hvítir rampar á sviðsgólfinu og ljósklædd leikkona í hlutverki myndastyttu á stalli. Já og klingjandi sembaltónar.
Þorgeir Tryggvson skrifar um sýningu Leikfélags Selfoss
|
|
Lesa meira...
|
|
Hamingjan verður ekki hertekin |
|
|
|
|
Halaleikhópurinn Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson er mikið meistaraverk. Kannski felst snilldin við það helst í því að láta lesandann hafa samúð með þeim sem þó eru líklega sekir, og jafnvel hálfgerða andúð á fórnarlömbunum. Sagan er mjög dramatísk en frásögnin er eins og Ísland í gamla daga. Fábrotin og látlaus. Sögupersónur eru fátækt sveitafólk. Við erum klárlega ekki í amerískri bíómynd þó svo að úr efninu væri auðveldlega hægt að gera slíka.
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir skrifar um sýninguna.
|
|
Lesa meira...
|
|

Hugleikur Hannyrðir og hagleiksmenn Leikstjóri: Guðmundur Erlingsson
Í ágætu húsnæði sínu (en illa merktu) við Eyjarslóðina í Reykjavík hefur Hugleikur nú boðið til sýningar á Hannyrðum og hagleiksmönnum eftir Sigurð H. Pálsson. Fyrir utan stórar uppfærslur einu sinni til tvisvar á vetri er leikfélagið Hugleikur frægt fyrir frumsamin stuttverk sín, einþáttunga og örleikrit, sem hafa verið sýnd við nokkrar vinsældir. Mest af stuttverkunum hefur verið sýnt í Þjóðleikhúskjallaranum og Kaffileikhúsinu en einnig á Eyjarslóðinn upp á síðkastið. Einn af öðrum hafa þrír hannyrðaþættir Sigurðar H. Pálssonar í leikstjórn Guðmundar Erlingssonar orðið til sem liður í þessum dagskrám en nú er bætt um betur: Þættirnir eru orðnir fimm auk lítilla atriða, farið er fram og aftur í tíma og úr verður allra skemmtilegasta sýning.
Hrund Ólafsdóttir skrifar um sýningu Hugleiks, Hannyrðir og hagleiksmenn, sem frumsýnd var 16. janúar sl.
|
|
Lesa meira...
|
|
 Leikfélag Kópavogs Umbúðalaust Leikstjóri: Vigdís Jakobsdóttir
Ekkert íslenskt leikfélag leggur eins mikið upp úr vinnubrögðum „Devised theatre“ og Leikfélag Kópavogs. Í fréttatilkynningum um nýjustu sýningu félagsins kemur fram að það sé beinlínis stefna að árlega sé sett á svið amk ein sýning sem unnin er á þennan hátt; sköpuð frá grunni af leikhóp, leikstjóra og hjálparkokkum, með eða án fyrirfram gefins efniviðar.
Þorgeir Tryggvason skrifar um Umbúðalaust, sýningu Leikfélags Kópavogs sem frumsýnd var 15. janúar sl.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sigrún Valbergsdóttir fjallar um Margt smátt |
|
|
|
 Það var sannkölluð hátíðarstemming í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi, laugardaginn 10. október þegar stuttverkahátíðin Margt smátt var sett í fimmta sinn. Þau leikfélög sem sýndu voru Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélag Hafnarfjarðar, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar, Leikfélag Selfoss og Meginfelag áhugaleikara Føroya. Hvorki meira né minna en 18 verk biðu þess að vera leikin; þar af fimm verk frá Færeyjum og var komu Færeyinganna sérstaklega fagnað. Það eitt og sér að þau skyldu komast til Íslands í óveðrinu daginn áður má teljast kraftaverk.
|
|
Lesa meira...
|
|
Vandað Bergmál í Hafnarfirðinum |
|
|
|
 Hörður S. Daníelsson fór á frumsýningu hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar sl. föstudag og sá Bergmál, verk eftir N. Richard Nash. Leikarar eru Guðrún Sóley Sigurðardóttir og Aldís Davíðsdóttir, en þær sáu einnig um leikstjórn, búninga, leikmynd, ljós og allt annað sem viðkemur sýningunni. Einnig kom Halldór Magnússon við sögu í litlu þögulu hlutverki.
|
|
Lesa meira...
|
 Hörður S. Daníelsson skellti sér um daginn á sýninguna Morbid hjá The Fiasco Division í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Morbid er ein af sýningum Art fart hátíðarinnar sem nú er í fullum gangi. Þetta var devised leiksýning sem fjallar um lífið, eða tilgang lífsins eftir dauðan. Leikarar eru fimm: Alecande Roberts, Anna Zehentbauer, Kári Viðarsson, Lauren McCullum og Stephanie Thorpe. En þau eru öll verðandi útskriftarnemar í European Theatre Arts leiklistarbraut Rose Bruford College í London. Ljósin voru í höndum Garðars Borgþórssonar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fyrir og eftir syndafallið |
|
|
|
Ó, þú aftur? er ný og endurgerð uppfærsla á leikritinu Ó, þú eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Leikritið var frumsýnt af Hugleik á Galdraloftinu vorið 1987 og nú, rúmlega tuttugu árum síðar, er komið að því að færa þetta velumtalaða leikrit (og költverk) upp á nýjan leik á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Megintilefnið er aldarfjórðungsafmæli Hugleiks en þessi elsti starfandi áhugaleikhópur í höfuðstaðnum var stofnaður árið 1984. Í þessari aldursumfjöllun er nauðsynlegt að minna á þá sérstöðu Hugleiks, meðal annarra íslenskra leikfélaga, að leikverk hópsins eru öll samin innan hans og umfjöllunarefnið sprettur beint upp úr íslensku þjóðlífi (með póstmódernískri nálgun) þar sem markvisst er vísað til og unnið úr arfi íslenskrar menningar og sagnaritunar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Dauði í kreppunni umfjöllun |
|
|
|
Hörður S. Dan. skellti sér nýskeð á sýningu í Jaðarleikhúsinu á verk
sem heitir Dauði í kreppunni. Þetta er nýtt verk eftir hann Guðna
Líndal Benediktsson sem einnig er leikstjóri verksins. Þetta hafði
Hörður að segja um upplifunina:
|
|
Lesa meira...
|
|
Gefðu Jéns séns hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar |
|
|
|
Hörður S. Dan. skellti sér á sýningu Unglingadeildar Leikfélags
Hafnarfjarðar Gefðu Jens séns. Þetta er sýning byggð á spunavinnu sem
unglingarnir hafa staðið í frá því í janúar. Endaði sú vinna með
fjögurra vikna formfastari vinnu og er þessi sýning útkoma þess.
|
|
Lesa meira...
|
|
Magnús Magnússon skellti sér á Töðugjaldaball |
|
|
|
|
Félagar í Ungmennafélagi Reykdæla láta hreint ekki deigan síga í leiklistinni þrátt fyrir að síðastliðinn vetur hafi verið ráðist í umfangsmikla sýningu þegar Þið munið hann Jörund var fært upp á aldar afmælinu. Verkefni þessa vetrar er um margt frábrugðið hefðbundnum leiksýningum. Afraksturinn mátti síðan sjá síðastliðið föstudagskvöld þegar frumsýndur var í Logalandi nýr söng- og gleðileikur sem nefnist Töðugjaldaballið Sendu mér SMS. Hér er á ferðinni splunkunýr söngleikur í fullri lengd eftir heimamenn.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hin illa dauðu í Keflavík |
|
|
|
Leikfélag Keflavíkur sýnir um þessar mundir söngleikinn Hin illa dauðu sem
byggður er á kvikmyndunum góðkunnu Evil dead, Evil dead 2 og Evil dead
3. Leikstjóri sýningarinnar er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Hörður S.
Dan brá sér á sýninguna og hér má fræðast um hvernig hann upplifði hana.
|
|
Lesa meira...
|
|
Mögnuð Lína hjá Umf. Íslendingi |
|
|
|
|
Það var góð stund sem undirritaður átti með fjölskyldunni síðastliðinn laugardag í Borgarfirði. Ferðinni var heitið í félagsheimilið Brún í Bæjarsveit þar sem leikdeild Umf. Íslendings frumsýndi leikritið sívinsæla um hana Línu Langsokk. Verkið sjálft er eftir snillinginn Astrid Lindgren. Það er fyrir löngu orðinn klassíker sem allir, stórir sem smáir, þekkja út í æsar. Sá sem þetta ritar var svo heppinn að hafa með í för þrjár sjö ára hnátur og fékk þær að aflokinni sýningu sem sérstaka álitsgjafa og leikdómara. Þegar ekið var heim eftir sérlega vel heppnaða sýningu var því ekki flókið mál að setja saman í huganum dóm um verkið byggðan á lýsingum stúlknanna. Í fáum orðum sagt skemmtu hinir ungu leikhúsgestir sér konunglega og það gerðu ekki síður hinir fullorðnu sem voru með í för.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sjóræningjaprinsessan á Selfossi |
|
|
|
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir skrapp um helgina austur fyrir fjall til
að sjá sýningu Leikfélags Selfoss á nýju íslensku barnaleikriti,
Sjóræningjaprinsessunni sem Ármann Guðmundsson semur og leikstýrir. Hér
greinir hún frá þeirri upplifun:
Ég brá mér í leikhús um helgina. Fór við þriðja aðstoðargagnrýnanda að
sjá Sjóræningjaprinsessuna hjá Leikfélagi Selfoss. Alltaf gaman að sjá
ný barnaleikrit og svona. Auk þess sem sjóræningjaþemað hefur verið
algjörlega vanrækt um langa hríð. En leikskáldið og leikstjórinn Ármann
Guðmundsson hefur greinilega fengið einhverja flugu í höfuðið um að
endurvekja það, á þessum síðustu og verstu, og tekist það ljómandi
ágætlega.
|
|
Lesa meira...
|
|
Velheppnuð Shakespeare-sýning í Halanum |
|
|
|
Markvisst og metnaðarfullt verkefnaval Halaleikhópsins heldur áfram að
skila okkur áhorfendum eftirminnilegum upplifunum. Núna er það sjálfur
Shakespeare sem heimsækir Halann með efni úr þremur leikritum,
Þrettándakvöldi, Jónsmessunæturdraumi og Hinrik IV. Þröstur
Guðbjartsson hefur áður fengist við bútasaum af þessu tagi og fléttar
hér tvær senur úr síðarnefndu leikritunum saman við meginþræði
Þrettándakvölds. Útkoman er að mati Þorgeirs Tryggvasonar í stuttu máli
afbragðs skemmtun.
|
|
Lesa meira...
|
|
...og þú hélst að þín fjölskylda væri slæm! |
|
|
|
Leikfélag Ölfuss virðist komið til að vera. Félagið hefur á undanförnum
árum fengið til liðs við sig góða leikstjóra og sett upp skemmtilegar
sýningar. Góð blanda sem skilar árangri. Nú er komið á fjalirnar í
Versölum leikritið Blúndur og blásýra, kolsvört kómedía um Brewster
fjölskylduna sem er langt frá því að vera öll þar sem hún er séð. Guðmundur Karl Sigurdórsson brá sér á sýninguna. Umfjöllunin var upphaflega birt í
Sunnlenska fréttablaðinu 21. janúar sl. og er birt með góðfúslegu leyfi
höfundar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Skrautlegt heimilislíf og grátbroslegar persónur |
|
|
|
|
Magnús Þór Jónsson brá sér á sýningu hjá Leikfélagi Ólafsvíkur á leikritinu Taktu lagið Lóa og stóðst ekki mátið að skrifa um upplifun sína af sýningunni:
Síðastliðið föstudagskvöld frumsýndi Leikfélag Ólafsvíkur leikritið Taktu lagið Lóa í Félagsheimilinu Klifi. Verkið er eftir Jim Cartwright en er í leikstjórn Gunnsteins Sigurðssonar.
Í stuttu máli sagt má lýsa leikritinu sem útgáfu af Öskubusku. Aðalsöguhetjur eru ung, afar einræn stúlka með þann einstaka hæfileika að geta hermt eftir þekktum söngvurum og svo fólk sem vill nýta þennan hæfileika hennar í sína þágu.
|
|
Lesa meira...
|
Leikfélagið Grímnir og leikdeild Grunnskóla Stykkishólms sýna nú
rokkóperuna Jesus Christ superstar eftir Tim Rice og tónlistin er eftir
Andrew Lloyd Webber. Í íslenskri þýðingu Níelsar Óskarssonar hefur
þetta verk hlotið hafnið Jesús Guð Dýrlingur. Það þarf mikinn metnað og kjark til að takast á við slíkt verk í
rúmlega þúsund manna byggðarlagi. Ég gerði mér ferð í Stykkishólm til
að sjá þessa sýningu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Mowgli undir Mýrdalsjökli |
|
|
|
|
Þorgeir Tryggvason fjallar um sýningu Leikfélags Kópavogs á Skugga-Sveini:
"Það er fagnaðarefni af stærra taginu að ganga inn í nýtt leikhús.
Sérstaklega ef þar er ekki tjaldað til einnar nætur. Hið nýja húsnæði
Leikfélags Kópavogs lofar svo sannarlega góðu og fyllsta ástæða til að
óska félagsmönnum og bæjarbúum til hamingju með þetta. Leikfélag
Kópavogs hefur um árabil verið meðal framsæknustu og metnaðarfyllstu
leikfélaga landsins og allar líkur á að þessi varanlega vinnuaðstaða
verði skotpallur fyrir enn hærra flug."
|
|
Lesa meira...
|
|
Við erum stödd í Logalandi í Reykholtsdal. Hinu gamla en margstækkaða félagsheimili hefur verið umturnað og því breytt í sögusvið kráarinnar Jokers & Kings í London þar sem saga Jónasar Árnasonar af Jörundi hundadagakonungi var sögð á frumsýningu síðastliðið föstudagskvöld.
Þannig hefst gagnrýni Magnúsar Magnússonar á leiksýninguna Þið munið hann Jörund sem Umf. Reykdæla sýnir um þessar mundir á 100 ára afmæli félagsins. Pistillinn er birtur með góðfúslegu leyfi höfundar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Jörundur góður í Freyvangi |
|
|
|
|
Freyvangsleikhúsið sýnir um þessar myndir alþýðuleikinn Þið munið hann Jörund. Steinþór Þráinsson brá sér í Freyvang og hefur góð orð um sýninguna. Pistillinn er birtur á Leiklistarvefnum með góðfúslegu leyfi höfundar og Vikudags, en þar birtist hann í gær.
|
|
Lesa meira...
|
|
Afar skemmtileg afmælissýning |
|
|
|
Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir gamanleikinn Með táning í tölvunni eftir einn virtasta og vinsælasta farsahöfund heims í dag, Ray Cooney. Magnús J. Magnússon var á frumsýningunni þann 11. janúar og skemmti sér hið besta.
|
|
Lesa meira...
|
|
Umfjöllun um sýningar á Mörgu smáu |
|
|
|
 Þann 6. október sl. var Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga haldin í Borgarleikhúsinu með pompi og prakt. Að þessu sinni tóku sex leikfélaög þátt, Freyvangsleikhúsið, Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélög Kópavogs og Mosfellssveitar og Leikfélagið Sýnir. Að venju var fengin fagmaður til taka út hvert til tókst og þetta árið var það leikkonan og leikstjórinn Harpa Arnardóttir sem tók að sér þetta krefjandi hlutverk.
|
|
Lesa meira...
|
|
|