BÍL
neata2010banner01

Póstlistar

Viltu gerast áskrifandi?
Leiklist.is - Vikupóstur
Fréttaskot BÍL
Skólapóstur



arsri2009tbanner
aboutus.png

Leit á vefnum

Nýjar fréttir

(08.09.10)
Skepna frumsýnt á Norðurpólnum
Þann 10. September nk. hefjast...
(06.09.10)
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum...
(03.09.10)
Tjarnarbíó opnað 1. október
Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun...
(25.08.10)
Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir áttunda örverkið...
(19.08.10)
Leikfélagið Sýnir frumsýnir Allir komu þeir aftur
Leikfélagið Sýnir  frumsýnir leikverkið Allir...
hugleikur.gif
mosfellssveit.gif
Upphafssíða Fréttir Birtíngur kveður Suðurland
Birtíngur kveður Suðurland Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 14. Maí 2010 13:35
birtingur1Leikritið Birtíngur sem Leikfélag Selfoss sýndi í vetur, heldur nú brátt í víking og ferðast norður yfir heiðar á NEATA-leiklistarhátíðina sem haldin verður á Akureyri 10.–15. ágúst næstkomandi. Áður en Birtíngur kveður Suðurland fyrir fullt og allt munu þó verða sýndar tvær fjáröflunarsýningar í Litla leikhúsinu við Sigtún á hátíðinni Vor í Árborg til að safna fyrir ferðinni norður.

Sýningarnar verða föstudaginn 14. maí og sunnudaginn 16. maí og hefjast báðar kl. 20.00. Stytta þurfti sýninguna um klukkutíma fyrir leiklistarhátíðina og hefur leikhópurinn æft þær breytingar undanfarna daga. Æfingarnar hafa gengið vel og er sýningin þéttari og skemmtilegri en boðskapurinn er að sjálfsögðu enn á sínum stað.

NEATA-leiklistarhátíðin er hátíð áhugaleikfélaga á Norðulöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Birtíngur var valinn úr hópi sýninga fyrir Íslands hönd ásamt tveimur öðrum íslenskum sýningum. Ferðin norður verður viðamikil enda er um 30 manna hópur með í för. Því var brugðið á það ráð að kveðja Suðurland með þessum hætti.

Aðgöngumiðar seljast með frjálsum framlögum en lágmarksverð verður þó 1000 kr. Aðgangseyrir rennur í ferðasjóð sem notaður verður til að kosta ferðalagið á þessa stórmerkilegu hátíð á Akureyri sem haldin verður í hinu glæsilega menningarhúsi Hofi. Nánari upplýsingar eru á www.leikfelagselfoss.is

Miðapantanir eru í s. 4822787 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Senda á:

Facebook   
 
info@leiklist.is - sími: 551-6974 / 562-2944 - Fax: 562-2984 - Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavik - kt. 440169-0239 - Vefstjori: lensherra@leiklist.is