BÍL
neata2010banner01

Póstlistar

Viltu gerast áskrifandi?
Leiklist.is - Vikupóstur
Fréttaskot BÍL
Skólapóstur



arsri2009tbanner
aboutus.png

Leit á vefnum

Nýjar fréttir

(29.07.10)
Hans klaufi um Verslunarmannahelgina
Leikhópurinn Lotta verður á ferð...
(27.07.10)
Leikfélagið Sýnir sýnir Allir komu þeir aftur á artFart í ágúst.
Leikfélagið Sýnir er áhugaleikfélag sem...
(23.07.10)
Þjónustumiðstöðin lokar frá 8.-17. ágúst
Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga að...
(12.07.10)
Fröken Fix sýnir Ómynd í ágúst
Leikhópurinn Fröken Fix var stofnaður...
(07.07.10)
Ari Matthíasson nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins
Starf framkvæmdastjóra við Þjóðleikhúsið var...
hugleikur.gif
mosfellssveit.gif
Upphafssíða Fréttir Aukasýningar á Sjöundá
Aukasýningar á Sjöundá Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 03. Mars 2010 13:25
svartfugl_teikning
Halaleikhópurinn frumsýndi 5. febrúar sl. Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar, nýja leikgerð eftir leikstjórann Ágústu Skúladóttur, Þorgeir Tryggvason og leikhópinn. Sýningin hefur vakið mikla athygli og fengið góða dóma. Nú hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningum laugardaginn 13. mars kl. 20.00 og sunnudaginn 14. mars kl. 17.00. Þegar er að verða fullt á fyrri sýninguna.

Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur. Þeim var gefið að sök að hafa lagt á ráðin og banað mökum sínum. Tónlist og áhrifshljóð í verkinu eru samin af Einari Andréssyni og Einari Melax og er í lifandi flutningi spilað er á gömbu, steinaspil, ferðaharmoníum og borðhörpu.

Sýnt er í Halanum Hátúni 12, 105 Reykjavík. Gengið inn að norðanverðu.

Miðasala er í síma 897-5007 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef félagsins www.halaleikhopurinn.is þar má finna slóðir á umsagnir um sýninguna.

Senda á:

Facebook   
  Engar athugasemdir.
Þú þarft að skrá þig inn eða búa til aðgang til að leggja inn athugasemd.
Ræða þessa grein á spjallinu. (0 innlegg)
info@leiklist.is - sími: 551-6974 / 562-2944 - Fax: 562-2984 - Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavik - kt. 440169-0239 - Vefstjori: lensherra@leiklist.is