BÍL
neata2010banner01

Póstlistar

Viltu gerast áskrifandi?
Leiklist.is - Vikupóstur
Fréttaskot BÍL
Skólapóstur



arsri2009tbanner
aboutus.png

Leit á vefnum

Nýjar fréttir

(08.09.10)
Skepna frumsýnt á Norðurpólnum
Þann 10. September nk. hefjast...
(06.09.10)
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum...
(03.09.10)
Tjarnarbíó opnað 1. október
Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun...
(25.08.10)
Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir áttunda örverkið...
(19.08.10)
Leikfélagið Sýnir frumsýnir Allir komu þeir aftur
Leikfélagið Sýnir  frumsýnir leikverkið Allir...
hugleikur.gif
mosfellssveit.gif
Upphafssíða Fréttir Af ástum manns og hrærivélar í Þjóðleikhúsinu
Af ástum manns og hrærivélar í Þjóðleikhúsinu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 12. Maí 2010 15:33
astir
Það verða eflaust ófá hlátrasköllin sem munu hljóma þegar hjartnæmi heimilistækjasirkusinn Af ástum manns og hrærivélar verður frumsýndur fimmtudaginn 20. maí í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins. Það eru þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kristján Ingimarsson sem leika sambýlisfólkið Söru og Guðjón. Augasteinninn í lífi þeirra er Nilfisk ryksuga.

Á meðal hversdagslegra uppákoma í lífi þessa undursamlega sambýlisfólks má nefna:

Tugþraut í tengiflugi
Nilfisk sjónhverfingar
Hrærivélasamdrættir
Flögrandi forréttir
Samhæfður klútadans

Leikritið er eftir fjórmenningana Ilmi Stefánsdóttur, Kristján Ingimarsson, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Val Frey Einarsson. Valur er jafnframt leikstjóri og Ilmur hannar sviðsmynd og búninga. Það er engu logið þegar sagt er að einstakur húmor, færni og hugmyndaflug hafa verið einkennismerki listafólksins sem kemur að þessu verki og ekki dregur það úr gleðinni að  Davíð Þór Jónsson er höfundur tónlistar og hljóðmyndar – spilar á steypuhrærivél, potta, pönnur, Nilfisk ryksugur og önnur helstu heimilistæki.



Senda á:

Facebook   
  Engar athugasemdir.
Þú þarft að skrá þig inn eða búa til aðgang til að leggja inn athugasemd.
Ræða þessa grein á spjallinu. (0 innlegg)
info@leiklist.is - sími: 551-6974 / 562-2944 - Fax: 562-2984 - Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavik - kt. 440169-0239 - Vefstjori: lensherra@leiklist.is